Kóði

Allur kóði greinargerðarinnar og líkananna er opinn á GitHub: https://github.com/HI-IDN/IDeLM-panel-fairness (HI-IDN, e.d.). Þar er líka lýst hvernig á að setja upp og keyra hann. Hér er aðeins sagt í stuttu máli hvernig safnið er byggt upp.

Gögnin. Einu gögnin í safninu eru dulkóðuð: ein lína fyrir hverja umsókn, með fundi, ritstjóra, lesurum, vanhæfi og röð á dagskrá fyrir fundi sem eru búnir. Fagráðsmenn og umsóknir eru aðeins kóðar. Raunveruleg nöfn, umsóknarnúmer og lykillinn á milli þeirra fara aldrei í safnið. Kerfi TÞS gæti skilað sömu skrá beint.

Líkönin eru skrifuð í Python (Python Software Foundation, e.d.) og leyst með Gurobi (Gurobi Optimization, LLC 2025):

Keyrslurnar. Ein skrifta keyrir allar sviðsmyndir greinargerðarinnar í röð, þar sem hver byrjar á lausn þeirrar á undan. Önnur skrifta afritar niðurstöðurnar, dulkóðaðar, á þann stað sem greinargerðin les þær. Keyrsluskrár Gurobi fara ekki í safnið, því þær geyma upplýsingar um leyfið.

Myndir og töflur eru gerðar í R (R Core Team, e.d.) með ggplot2 og tidyverse (Wickham 2016; Wickham o.fl. 2019): ein skrá fyrir gögnin (2  Gögnin) og önnur fyrir niðurstöður líkananna.

Greinargerðin sjálf er skrifuð í Quarto (Allaire o.fl., e.d.). Hún er byggð og birt sjálfkrafa á GitHub Pages í hvert sinn sem breyting er sett á aðalgreinina.