2  Gögnin

Þessi kafli lýsir einni umsóknarlotu af raunverulegum gögnum fagráðsins. Hún er grunnlína fyrir þær tvær ákvarðanir sem líkan gæti bætt: hver les hvaða umsókn og hvenær hver umsókn er tekin fyrir.

2.1 Gögn og dulkóðun

Gögnin koma úr tveimur áttum: núverandi tillögu að fundaskipan í kerfi TÞS (hvaða umsókn er á hvaða fundi, ritstjóri, lesarar og vanhæfi) og dagskrá þeirra 3 funda sem þegar hafa verið haldnir, sem hefur verið sent með tölvupósti.

Allt í þessari greinargerð er dulkóðað:

  • fagráðsmenn eru R01–R21 og umsóknir A001–A110, úthlutað í slembiröð;
  • fundir eru númeraðir M1–M9 í tímaröð, án dagsetninga og heita;
  • titlar, umsækjendur og umsóknarnúmer eru ekki hluti af gagnasafninu.

Lykillinn milli kóða og raunverulegra nafna er aðeins geymdur á tölvu höfundar.

Umsóknir 110
Fagráðsmenn 21
Fundir 9 (7–15 umsóknir á hverjum)
Umsóknir með ritstjóra og tvo lesara 110
Umsóknir þar sem vanhæfi er skráð 27

2.1.1 Gæði gagna

  • 0 umsóknir hafa hvorki ritstjóra, lesara né fund () og hafa líklega verið felldar á formgalla af starfsmönnum sjóðsins. 0 umsóknir til viðbótar hafa lesara en engan fund enn (). Þær teljast með í álagi hvers fagráðsmanns og eru sýndar sem Óúthlutað á myndum um fundi, en ekki sem fundir sem mætt er á.
  • 1. lesari og 2. lesari fylgja stafrófinu. Í 108 af 110 umsóknum með tvo lesara eru þeir skráðir í stafrófsröð. Hver fær að tala næstur ræðst því af upphafsstöfum fagráðsmanna, ekki af úthlutuninni. Hvað álag varðar eru lesararnir tveir sameinaðir í eitt lesarahlutverk.
  • Enginn fagráðsmaður les umsókn sem hann er vanhæfur til að fjalla um. Best væri að sá fagráðsmaður væri alfarið ekki á þeim fundi, eða væri farinn af fundi þegar sú umsókn er tekin fyrir. Á fundunum tveimur sem eru búnir var vanhæfur fagráðsmaður enn á fundinum í 3 af 9 tilvikum þegar umsókn sem hann var vanhæfur í var tekin fyrir.

2.2 Álag á hvern fagráðsmann

Tafla 2.1: Umsóknir á hvern fagráðsmann: bil og miðgildi eftir hlutverki. 1. lesari og 2. lesari eru sameinaðir.
Hlutverk Minnst Miðgildi Mest
Ritstjóri 1 5 11
Lesari 4 11 18
Samtals 9 16 22
Mynd 2.1: Umsóknir á hvern fagráðsmann, skipt í ritstjóra- og lesarahlutverk.
Mynd 2.2: Dreifing milli fagráðsmanna: ritstjóri, lesari (1. og 2. lesari sameinaðir) og samtals.
Mynd 2.3: Hlutfall ritstjóra- og lesarahlutverka af umsóknum hvers fagráðsmanns.

2.3 Greiðslur

Hver fagráðsmaður fær grunngjald, 38.000 kr., auk 23.000 kr. fyrir hvert ritstjórahlutverk og 15.000 kr. fyrir hvert lesarahlutverk (1. lesari og 2 fá það sama).

Mynd 2.4: Greiðslur til hvers fagráðsmanns í lotunni. Merkið sýnir samtals og greiðslu á umsókn, í þúsundum króna.
Mynd 2.5: Dreifing greiðslu á umsókn.

Greiðslur eru á bilinu 181.000–432.000 kr. (Mynd 2.4). Á umsókn er miðgildið 19,9 þús. kr. og helmingur fagráðsmanna á bilinu 19,3–21,0 þús. kr. (Mynd 2.5). Munurinn ræðst nær alfarið af hlutfalli ritstjórahlutverka: þeir sem eru að mestu lesarar fá minnst á umsókn. Hvort greiðslan sé sambærileg á klukkustund er ekki hægt að segja fyrr en tímanotkun hefur verið mæld.

2.4 Athuganir

  1. Heildarálag er ójafnt. Fagráðsmenn hafa á bilinu 9 til 22 umsóknir (miðgildi 16), svo sá sem mest hefur er með meira en tvöfalt álag þess sem minnst hefur.
  2. Ritstjórahlutverkið er líka ójafnt. Fjöldi ritstjórahlutverka er á bilinu 1 til 11 (miðgildi 5). Ritstjórn og lestur jafna hvort annað ekki út: sumir ritstýra litlu en lesa mikið og öfugt. Skýringin er að hluta sú að ritstjórahlutverkin falla á þá reyndari: nýir fagráðsmenn hafa færri ritstjórahlutverk en fleiri lesarahlutverk (Tafla 5.2). Sumir nýir fá sitt eina ritstjórahlutverk ekki fyrr en seint í lotunni (M6), eftir að hafa fyrst verið lesarar.
  3. Rými í umræðunni er ójafnt. Sumir eru 1. lesari á allt að 14 umsóknum en aðrir aldrei; sumir eru 2. lesari á allt að 11 en aðrir aldrei. Þar sem 1. lesari og
    1. lesari fylgja stafrófinu fá fagráðsmenn með upphafsstafi framarlega í stafrófinu meira rými til að tjá sig, en þeir aftarlega eru oftast síðastir og hafa lítið við að bæta.
  4. Dagskrárröð er aðeins þekkt fyrir fundi sem eru búnir. Tillagan í kerfi TÞS sýnir á hvaða fundi umsókn er, en ekki hvar hún er á dagskrá. Röðin er þekkt fyrir fyrstu 3 fundina, úr tölvupóstum (Kafli 3). Fagráðsmenn með aðeins eina eða tvær umsóknir á fundi geta samt þurft að sitja allan fundinn ef þeirra umsóknir koma síðast.

Hvernig umsóknum er dreift á fundi, í bestuðu plani, er skoðað í Kafli 5.3. Forsendur, takmarkanir og næstu skref eru dregin saman í Kafli 8.