Capstone verkefni
Capstone-hópverkefnið: verkefnasvið, gagnasöfn og hvernig teymin vinna það yfir önnina.
Á fyrsta degi kynnir kennarinn nokkur verkefnasvið, hvert með eigin gagnasafni og umfangi. Þú velur þér hóp í kringum það vandamál sem þig langar til að leysa. Hópurinn vinnur saman í 14 vikur og hver lota námskeiðsins bætir við verkefnið — gagnahreinsun, SQL-greining, myndræn framsetning — þar til lokaafurðin, þ.e. capstone-verkefnið, er tilbúin.
Verkefnasvið fyrir 2026
Öll dæmin hér tengjast Reykjavík / höfuðborgarsvæðinu og deila sameiginlegum lykli (hverfi + tími) — hópar geta valfrjálst sótt gögn frá hvor öðrum til að auðga eigin greiningu.
| Hópur | Þema | Krókurinn |
|---|---|---|
| Rachel | Borgarslúðrið | Hvað er borgarstjórn í alvöru að tala um bak við luktar dyr (sem eru samt opnar öllum)? Grafið í þúsundum fundargerða og finnið dramatíkina. |
| Ross | Skipulags-CSI | Rannsakið borgina eins og glæpasenu — byggingar, lóðir, veitur. Hver byggði hvað, hvar, og hvenær fór allt úrskeiðis? |
| Chandler | Hvar er vagninn minn?! | Allir hafa staðið úti í rigningu og beðið. Nú fáið þið gögnin til að sanna að strætó er (eða er ekki) að seinka viljandi. |
| Phoebe | Skjálftavaktin | Land elds og íss, í rauntíma. Byggið mælaborð sem fylgist með Íslandi skjálfa, kólna og hitna — beint í æð. |
| Monica | Húsnæðisbrjálæðið | Af hverju er ómögulegt að finna íbúð? Kafið í tölurnar á bak við leigu- og fasteignaverð og sannið það sem allir vita nú þegar. |
| Joey | Túristasprengjan | Milljónir ferðamanna, ein lítil borg. Hvenær koma þau, hvert fara þau, og hvað gerir það við borgina ykkar? |
Hlutverk í hóp
Hlutverk skiptast í hverri lotu:
- Einn eða fleiri meðlimir kóða (PR-höfundar á GitHub)
- Einn eða fleiri meðlimir rýna kóðann (PR-rýnar á GitHub)
- Verkefnastjóri (skipt á milli lota) samræmir tímafresti, hefur samband við kennarann og ber ábyrgð á að hafa yfirsýn yfir framvindu verkefnisins: hvað er að gerast í hópnum, hver gerir hvað og hvers vegna. Í upphafi næstu lotu er verkefnastjóri spurður út í vinnu hópsins í nýafstaðinni lotu í óundirbúnum iTA-fyrirspurnartíma á mánudegi.
Allt þetta er sýnilegt í Git-sögunni — hver gerði hvað, hvenær, og hvort kóðarýni var ítarleg.
Git-sagan er hluti af einkunnargjöfinni.
Teymissáttmáli
Hópurinn semur TEAM.md á fyrstu viku sem inniheldur:
- Tungumálaval (íslensku eða ensku) — þetta á við um allt: kóða, skjöl og skýrslur
- Vinnureglur og mætingarskyldur
- Hvernig úrlausn deilumála fer fram
- Tímasetning og samskiptarásir
GitHub Pages og skýrslur
Eftir hverja lotu bætið þið við gögnum og myndum við GitHub Pages-teymissíðuna ykkar — í lokaverkefninu er síðan ykkar lifandi skýrsla sem sýnir alla ferðina frá fyrstu viku til þeirrar síðustu.
Verkefnastjóri og yfirsýn
Í capstone-verkefninu eru teymin þriggja manna. Það þýðir að verkefnastjóri hverrar lotu, sem þarf að geta staðið skil á vinnu hópsins í iTA, hefur yfirleitt annaðhvort verið PR-höfundur eða PR-rýnir á öllum greinum sem voru sameinaðar inn í main.
Ef verkefnastjóri hefur sinnt PR-rýninni nægilega vel ætti hann því að vera vel kunnugur verkefninu: hvað var gert, hver gerði hvað, hvers vegna breytingarnar voru samþykktar og hvernig þær tengjast capstone-verkefninu.