Inngangur

Endurtækar skýrslur: Quarto, R Markdown eða Jupyter skjöl sem tengja saman texta, kóða, gögn og niðurstöður.

Endurtækar skýrslur eru ein af lykilatriðum námskeiðsins. Markmiðið er að þið getið skrifað skýrslu þar sem texti, kóði, gögn, myndir og niðurstöður mynda eitt samhangandi vinnuflæði.

Í stað þess að afrita niðurstöður handvirkt úr einu tóli yfir í annað er skýrslan keyrð beint af gögnunum. Þegar gögnin eða kóðinn breytast er hægt að endurkeyra skýrsluna og fá uppfærðar niðurstöður.

Efni sem verður farið yfir

  • Hvernig texti og kóði vinna saman í einu skjali
  • Hvernig gögn eru lesin inn og unnin í skýrslu
  • Hvernig töflur, myndir og niðurstöður uppfærast sjálfkrafa
  • Hvernig skýrslur eru gerðar endurtakanlegar og deilanlegar
  • Hvernig Git og GitHub styðja við rekjanleika í skýrslugerð