Gagnagrunnstól
Uppsetning á PostgreSQL og þróunarumhverfi (DataGrip, DBeaver, VS Code) til að tengjast gagnagrunni og keyra fyrirspurnir.
Þessi síða safnar saman uppsetningu tólanna sem þarf fyrir gagnagrunnshluta námskeiðsins. Sjálf hugtökin — hvað PostgreSQL og psql eru — eru útskýrð í kaflanum Samskipti við gagnagrunna; hér snýst allt um að koma tólunum í gang.
Tengingarupplýsingarnar (host, port, database, user, password) færðu afhentar í námskeiðinu — fylltu þær inn þar sem beðið er um þær hér að neðan.
Setja upp PostgreSQL
PostgreSQL niðurhal: veldu rétt stýrikerfi og fylgdu leiðbeiningunum til að setja upp PostgreSQL og psql.
IDE fyrir gagnagrunna
Til að auðvelda vinnu með gagnagrunn er gott að nota þróunarumhverfi (IDE) sem býður upp á sérstakar aðgerðir fyrir gagnagrunna. Hér eru þrjú tól sem mælt er með.
1. DataGrip
- DataGrip er öflugt IDE frá JetBrains sem styður marga gagnagrunnsþjónustu, þar á meðal PostgreSQL.
- Hægt er að tengja GitHub Copilot við DataGrip til að fá tillögur að SQL fyrirspurnum.
- Nemendur geta sótt um frítt leyfi sem gildir í eitt ár í senn á meðan þeir eru í námi.
- Sækið DataGrip og fylgið leiðbeiningum fyrir uppsetningu.
- Opnið nýja tengingu og veljið PostgreSQL sem gagnagrunnskerfi. Fyllið inn tengingarupplýsingarnar: host, port, database, user, password. Prófið tenginguna til að vera viss um að hún virki.
- Í fyrsta skipti þarf að bæta við PostgreSQL driver — IDE-ið spyr um það og gefur leiðbeiningar.
2. DBeaver
- DBeaver er opinn hugbúnaður (e. open source) sem styður mörg gagnagrunnskerfi, þar á meðal PostgreSQL.
- Það býður upp á einfalt og aðgengilegt viðmót og er frítt.
- Sækið DBeaver Community Edition og fylgið leiðbeiningum fyrir uppsetningu.
- Opnið nýja tengingu og veljið PostgreSQL sem gagnagrunnskerfi. Fyllið inn tengingarupplýsingarnar: host, port, database, user, password. Prófið tenginguna.
- Í fyrsta skipti þarf að bæta við PostgreSQL driver — IDE-ið spyr um það og gefur leiðbeiningar.
3. Visual Studio Code
- VS Code styður marga viðbótarpakka fyrir vinnu með SQL og PostgreSQL.
- Kostur: þú getur unnið með kóða og SQL í sama umhverfi. Sjá almenna umfjöllun um VS Code í Þróunarumhverfi (IDE).