Leyfi

Leyfið á námsefninu og hvernig nota má það og deila því.

Þessi námskeiðsbók er opin og aðgengileg á GitHub. Hún er bæði hugsuð sem námsefni fyrir nemendur í IÐN302G og sem lifandi vinnusvæði þar sem hægt er að bæta skýringar, dæmi og leiðbeiningar yfir tíma.

Efnið í gagnageymslunni er gefið út undir GNU General Public License v3.0, nema annað sé sérstaklega tekið fram.

Það þýðir í stuttu máli að það má skoða, nota, afrita og breyta efninu, svo lengi sem leyfið er virt og breytingar eru rekjanlegar.

Ef myndir, gögn eða annað ítarefni kemur úr öðrum heimildum getur það haft sér leyfi eða notkunarskilmála. Þá gilda skilmálar upprunalegu heimildarinnar fyrir það efni.