Projects
Hvernig GitHub Projects heldur utan um issues og gerir vinnu teymisins sýnilega.
GitHub Projects er verkefnatafla sem heldur utan um vinnuna á einum stað. Í stað þess að skoða issues sem langan lista sýnir Projects þau sem spjöld á töflu, oftast í dálkum eins og Til vinnslu, Í vinnslu og Búið.
Þetta er í grunninn kanban-tafla, sem margir nemendur kannast við úr hugbúnaðarþróun. Kanban er einföld aðferð til að stýra vinnu þar sem hvert verk er spjald sem færist á milli dálka eftir stöðu — frá vinstri (ógert) til hægri (búið). Markmiðið er að gera vinnuflæðið sýnilegt: allir sjá í einni sjónhendingu hvað er ógert, hvað er í vinnslu og hvað er klárað, og hvar verk gætu verið að stöðvast. Kanban á rætur í framleiðslu (Toyota) en er í dag útbreitt í agile-hugbúnaðarþróun.
Í stuttu máli: issues segja hvað þarf að gera; Projects sýnir hvar hvert verk er statt og hver er með það. Taflan er sameiginlegt yfirlit teymisins yfir stöðu verkefnisins.
Af hverju að nota Projects?
Þegar issues verða fleiri en örfá er erfitt að sjá heildarmyndina í venjulegum issue-lista. Projects hjálpar teyminu að:
- sjá alla vinnuna í einu og hvar hún er stödd,
- vita hver ber ábyrgð á hverju verki,
- forgangsraða: hvað á að gera næst?,
- fanga stöðnuð verk sem hafa setið of lengi án hreyfingar,
- halda daglegum eða vikulegum stand-up án þess að telja upp allt sem er ógert.
Projects býr ekki til nýja vinnu — það raðar bara vinnu sem er þegar til sem issues (og stundum Pull Requests) þannig að hún verði sýnileg.
Tengsl við issues
Projects og issues eru tvær hliðar á sömu vinnu:
- Issue er ein afmörkuð vinnueining — hvað á að gera, hvers vegna og hvenær það telst klárt (sjá Issues).
- Projects er taflan sem raðar þessum issues eftir stöðu og forgangi.
Þegar issue er sett á töfluna verður það að spjaldi. Spjaldið vísar áfram í issue-ið sjálft, svo öll umræða, gátlisti og tenglar haldast á einum stað — taflan er bara annað sjónarhorn á sama issue.
Dæmigert flæði í námskeiðinu:
- Teymið býr til issue fyrir vinnu sem þarf að gera.
- Issue-ið er sett á Projects-töfluna í dálkinn Til vinnslu.
- Þegar einhver byrjar er spjaldið fært í Í vinnslu og
Assigneesettur á það. - Branch og Pull Request eru tengd við issue-ið með
Closes #12(sjá Issues). - Þegar PR er merge-að lokast issue-ið og spjaldið færist sjálfkrafa í Búið.
Closes #12 í Pull Request lokar issue-inu og færir spjaldið yfir í Búið ef dálkurinn er stilltur á stöðuna Done. Þannig helst taflan í takt við raunverulega stöðu án þess að uppfæra hana handvirkt.
Reitir sem hjálpa
Projects leyfir að bæta við aukareitum á spjöldin. Gagnlegir reitir fyrir hópverkefni:
- Status — dálkurinn sjálfur: Til vinnslu / Í vinnslu / Búið.
- Assignee — hver ber ábyrgð á verkinu.
- Priority — hvað skiptir mestu núna.
- Size / Estimate — hversu stórt verkið er, svo ekki lendi allt á einni manneskju.
Byrjið einfalt: Status og Assignee duga langt. Bætið við reitum þegar teymið finnur raunverulega þörf, ekki fyrr.