Samband
Hvar spurningar um námsefnið eiga heima og hvernig hafa má samband án þess að deila persónuupplýsingum.
Fyrir almennar spurningar um námsefnið má nota GitHub issues ef spurningin eða ábendingin getur gagnast öðrum nemendum líka.
Fyrir persónuleg mál, einkunnir, mætingu, skil eða annað sem á ekki heima á opnum vef skal hafa samband við kennara í gegnum Canvas eða með tölvupósti: helgaingim [hjá] hi.is
Ekki setja persónulegar upplýsingar á GitHub
GitHub issues og Pull Requests eru opin í þessu verkefni. Setjið því ekki þar:
- einkunnir eða einkunnaspurningar,
- veikindi, forföll eða persónulegar aðstæður,
- gögn sem innihalda persónuupplýsingar,
- lykilorð, API-lykla eða aðrar trúnaðarupplýsingar.
Slík mál eiga frekar heima í Canvas eða beinum samskiptum við kennara.