Inngangur
Hagnýt uppsetning á tólunum sem námskeiðið byggir á — Git og þróunarumhverfi (IDE) — svo þú komir vinnuumhverfinu þínu í gang.
Áður en þú getur unnið verkefnin þarftu að koma nokkrum tólum fyrir á eigin tölvu. Þessi hluti safnar saman hagnýtum atriðum varðandi uppsetningu sem er annars dreift um námsefnið:
- Þróunarumhverfi (IDE) — hvaða ritil/IDE er gott að nota, og hvenær sérhæft IDE borgar sig fram yfir alhliða.
- Setja upp Git — útgáfustjórnunarkerfið sem allt vinnuflæðið byggir á.
- SSH-lyklar — auðkenning fyrir sækja/pusha úr skipanalínu.
- Gagnagrunnstól — uppsetning á PostgreSQL og tengingu við gagnagrunn.
Ábending
Lentirðu í veseni við uppsetningu? Það er eðlilegt — margir gera það í byrjun. Skoðaðu líka kaflann Þegar eitthvað fer úrskeiðis fyrir Git-vandræði, og opnaðu issue ef leiðbeiningarnar eru óskýrar.