Töflur

Töflur eru grundvallareiningar í gagnagrunnum, þar sem gögnin eru geymd í röðum. Hægt er að búa til töflur, breyta þeim, og (endur)skilgreina gerðir dálka.

Töflur eru grundvallareiningar í gagnagrunnum, þar sem gögnin eru geymd í röðum og dálkum. Hver tafla inniheldur ákveðna gerð gagna og er skipulögð þannig að hver röð (e. row) samsvarar einu staki, og hver dálkur (e. column) samsvarar tilteknum eiginleikum gagna. Dálkar skilgreina hvaða tegund gagna er geymd, til dæmis heiltölur, texti eða tvíundargögn.

Búa til töflu

Til að búa til töflu notum við CREATE TABLE skipunina. Hér er dæmi um hvernig á að búa til töflu sem heitir operators:

CREATE TABLE operators
(
    opID       INTEGER,
    opName     CHAR(30),
    opSSN      CHAR(10),
    opAge      INTEGER,
    opYearInit INTEGER
); 

Í þessu dæmi er taflan operators búin til með fimm dálkum:

  • opID: Heiltala (INTEGER) sem gæti verið notuð sem auðkenni.
  • opName: Stafastrengur (CHAR(30)) sem geymir nafn.
  • opSSN: Stafastrengur (CHAR(10)) sem geymir kennitölu.
  • opAge: Heiltala (INTEGER) fyrir aldur.
  • opYearInit: Heiltala (INTEGER) fyrir ártal upphafs.

Gerðir dálka

Í SQLite eru til ýmsar tegundir dálka sem skilgreina hvernig gögn eru geymd í gagnagrunninum. Hér eru nokkrar algengar gerðir:

  • INTEGER: Heiltölur.
  • REAL: Fleytitölur.
  • TEXT: Stafir og strengir.
  • BLOB: Tvíundargögn (Binary Large Object).

Frekari upplýsingar um dálkagerðir í SQLite má finna á: https://www.sqlite.org/datatype3.html.

Að breyta töflum

SQLite styður nokkrar breytingar á töflum með ALTER TABLE skipuninni.

Bæta við dálki

Þú getur bætt við nýjum dálki með ALTER TABLE ... ADD COLUMN:

ALTER TABLE operators
    ADD COLUMN opAddress TEXT; 

Eyða dálki

Þú getur eytt dálki með ALTER TABLE ... DROP COLUMN:

ALTER TABLE operators DROP COLUMN opAddress; 

Endurnefna dálk

Þú getur endurnefnt dálk með því að nota ALTER TABLE ... RENAME COLUMN:

ALTER TABLE operators RENAME COLUMN opName TO operatorName; 

Breyting á dálkagerð

Það er ekki hægt að breyta gerð dálks beint með ALTER TABLE í SQLite. Til að breyta gerð dálks þarf að fylgja eftirfarandi ferli:

  • Búa nýjan dálk með réttu dálkagerðinni.
  • Afrita gögnin úr gamla dálkinn yfir í nýja dálkinn með UPDATE.
  • Eyða gamla dálkinn.
  • Endurnefna nýju dálkinn með gamla nafninu.

Aftur á móti, í PostgreSQL er hægt að breyta gerð dálks í einni skipun með:

ALTER TABLE...ALTER COLUMN...TYPE...;

Eyða töflu

Til að eyða töflu notum við DROP TABLE skipunina:

DROP TABLE operators; 

Þessi skipun eyðir töflunni operators úr gagnagrunninum. Athugaðu að þessi aðgerð er óafturkræf. Ef það eru einhverjir lyklar í töflunni sem tengjast öðrum töflum, þá getur komið villa ef reynt er að eyða töflunni. Þá þarf að fjarlægja tengingar við aðrar töflur fyrst, eða eyða tengdum töflum í leiðinni með viðbótinni CASCADE. Ekki er mælt með þeirri aðferð nema þú vitið nákvæmlega hvað þú ert að gera.

Athugið: - Þessi skipun eyðir töflunni operators úr gagnagrunninum. - Aðgerðin er óafturkræf. - Ef það eru einhverjir lyklar í töflunni sem tengjast öðrum töflum, getur komið villa ef reynt er að eyða töflunni. - Það þarf að fjarlægja tengingar við aðrar töflur fyrst, eða eyða tengdum töflum í leiðinni með viðbótinni CASCADE. - Ekki er mælt með þeirri aðferð nema þú vitir nákvæmlega hvað þú ert að gera.