Siðareglur, leiðbeiningar fyrir þátttakendur, öryggisstefna og sniðmát — hvað hver skrá svarar og hvar GitHub leitar að þeim.
README.md segir hvað verkefnið er. En sá sem rekst á geymsluna þína hefur fleiri spurningar: Má ég breyta einhverju? Hvernig? Hvað ef ég finn öryggisgalla? Hvernig er komið fram við fólk hér?
Þú getur svarað þeim í hvert sinn sem einhver spyr, eða skrifað svarið einu sinni. GitHub þekkir þessar skrár og sýnir þær á réttum stöðum: siðareglurnar þegar einhver opnar issue, gátlistann þinn þegar einhver opnar pull request.
Gátlistinn
GitHub heldur utan um þetta og gefur geymslunni einkunn. Þú sérð hana undir Insights → Community Standards, en það má líka sækja hana beint:
Talan er ekki markmið í sjálfu sér. Hún er áminning um hvað þú hefur ekki svarað enn.
AðvörunListinn segir ekki alla söguna
Taktu eftir issue_template hér að ofan. Þessi geymsla er með issue-sniðmát — fjögur talsins, í .github/ISSUE_TEMPLATE/ — en API-ið telur þau ekki með.
Ástæðan er sú að svarið hér listar tilteknar, staðlaðar skrár. Sniðmátin okkar eru issue forms, YAML-skrár í möppu, og falla ekki undir það sem þessi reitur leitar að. Vefsíðan undir Insights → Community Standards telur þau hins vegar með.
Þetta er sama lexía og í kaflanum um vefþjónustur: svar frá API er ekki sannleikurinn sjálfur, heldur það sem þjónustan valdi að segja þér. Athugaðu alltaf hvað reiturinn merkir í raun áður en þú byggir ályktun á honum.
Skrárnar fjórar
Skrá
Spurningin sem hún svarar
CODE_OF_CONDUCT.md
Hvernig er komið fram við fólk hér, og hvað geri ég ef brotið er á mér?
CONTRIBUTING.md
Hvernig legg ég eitthvað til, og hvað þarf ég að setja upp?
SECURITY.md
Ég fann öryggisgalla — við hvern tala ég, og ekki opinberlega?
pull_request_template.md
Hvað þarf að vera í lagi áður en ég sendi þetta inn?
Þær mega liggja í rót geymslunnar eða í .github/. GitHub finnur þær á báðum stöðum; .github/ heldur rótinni snyrtilegri þegar skrárnar eru orðnar margar. Sniðmátin sjálf verða þó að vera í .github/.
Siðareglur
Ekki skrifa þínar eigin. Notaðu Contributor Covenant, sem er þýddur á tugi tungumála og þekktur um allan heim. GitHub býður hann í boði með einum smelli: Insights → Community Standards → Add.
Eitt verðurðu samt að gera sjálf: fylla út tengiliðinn. Sniðmátið kemur með [INSERT CONTACT METHOD], og siðareglur sem segja fólki að tilkynna brot til staðgengils eru verri en engar. Þær lofa vernd sem er ekki til.
Sáttmálinn er til á 25 tungumálum, en íslenska er ekki þar á meðal. Þá stendurðu frammi fyrir vali: enskur texti sem allir skilja ekki til fulls, eða þýðing sem enginn hefur vottað.
Þessi geymsla fór þriðju leiðina: íslensk þýðing, merkt óopinber, með hlekk á útgáfufestu opinberu slóðina og þeirri reglu að hún gildi komi upp vafi. Leyfið á sáttmálanum (CC BY 4.0) heimilar það.
Taktu eftir að hlekkurinn vísar á /version/2/0/, ekki á forsíðuna. Sáttmálinn fær nýjar útgáfur, og vafaregla sem vísar á „nýjustu útgáfu” merkir eitthvað annað eftir tvö ár en hún gerði daginn sem hún var skrifuð.
Leiðbeiningar fyrir þátttakendur
Þetta er skráin sem sparar mestan tíma, og sú sem oftast er gagnslaus. „Sendu pull request” segir ekkert. Gagnleg CONTRIBUTING.md svarar því sem þú myndir annars þurfa að útskýra í hverri einustu yfirferð:
Hvernig set ég verkefnið upp og hvað þarf ég að hafa uppsett?
Hvernig prófa ég að breytingin mín virki, áður en ég sendi hana?
Eru einhverjar húsreglur um kóða sem ég myndi ekki giska á?
Síðasti punkturinn skiptir mestu. Skrifaðu niður það sem hefur raunverulega farið úrskeiðis hjá ykkur — gildruna sem allir lenda í. Almennt sniðmát af netinu inniheldur ekki gildruna ykkar.
ÁbendingDæmi: þessi geymsla
Bókin sem þú ert að lesa er í opinni geymslu, og skrárnar fjórar eru þar allar. CONTRIBUTING.md þar nefnir meðal annars að Quarto keyri Python gegnum reticulate en ekki gegnum python á PATH — sem veldur villu sem lítur út eins og pakkinn sé ekki uppsettur þótt hann sé það.
Það er ekkert sniðmát á netinu sem hefði sagt okkur það. Við lentum í því og skrifuðum það niður.
Öryggisstefna
Stutt skrá með einu svari: við hvern tala ég, í einrúmi?
Það síðasta er kjarninn. Sá sem finnur lykil í geymslunni þinni og opnar issue um það hefur gert vandann verri — issue eru opin öllum og benda beint á lykilinn. SECURITY.md gefur þeim annan stað að fara á.
Taktu líka fram hvað fellur utan. Brotinn hlekkur er ekki öryggismál, og ef þú segir það ekki færðu tilkynningar um brotna hlekki í netfangið sem átti að vera fyrir alvörumál.
Sniðmát
Sniðmát eru gátlisti á réttum stað á réttum tíma — í glugganum þar sem verið er að skrifa, ekki í skrá sem enginn les.
.github/pull_request_template.md fyllist sjálfkrafa inn í hvern nýjan pull request.
.github/ISSUE_TEMPLATE/ geymir issue-sniðmátin, sem sérstakur kafli fjallar um.
Haltu gátlistanum stuttum. Listi með tuttugu atriðum verður hakaður hugsunarlaust; listi með fimm er lesinn.
Æfing
Skoðaðu geymsluna fyrir hópverkefnið ykkar.
Sæktu einkunnina fyrir hana með sömu fyrirspurn og að ofan — skiptu bara út HI-IDN/IDN302G.
Hvaða skrár vantar? Bætið við þeirri sem myndi spara ykkur mestan tíma.
Skrifið eitt atriði í CONTRIBUTING.md sem einhver í hópnum hefur þegar þurft að útskýra fyrir öðrum. Það er verðmætasta línan í skránni.