Inngangur

Git og GitHub: útgáfustýring, geymslur, útibú, pull requests, kóðarýni, commit skilaboð og góð vinnubrögð.

Git og GitHub eru lykilverkfæri í námskeiðinu. Þau eru notuð til að halda utan um verkefni, skrá breytingar, vinna saman í hópum og byggja upp skýra sögu um hvernig verkefni þróast yfir tíma.

Git og GitHub eru líka leiðandi verkfæri í atvinnulífinu, bæði í hugbúnaðarþróun, gagnavinnu, rannsóknum og tæknilegri skjölun. Þess vegna er mikilvægt að kunna ekki bara skipanirnar, heldur líka vinnubrögðin sem fylgja góðri útgáfustýringu.

Í þessum hluta er farið yfir grunnatriði í Git og GitHub, algengar skipanir og góð vinnubrögð sem nýtast í hópverkefnum og capstone-verkefninu.

Stoðefni

ÁbendingStoðefni

Í tölvunarfræði er í boði námskeiðið Tölvur, stýrikerfi og tölvufærni sem gagnast vel þeim sem vilja styrkja grunninn í tölvuvinnu. Námskeiðið er hægt að fara yfir á eigin hraða í sjálfsnámi.

Í þessum hluta styðjumst við sérstaklega við kafla 7 um Git. Sjá YouTube playlista.

Hvað er Git?

Git er dreift útgáfustjórnunarkerfi (version control system) sem heldur utan um breytingar í kóða, gögnum og textaskrám yfir tíma. Með Git getið þið:

  • séð hvað breyttist, hvenær og af hverjum,
  • farið til baka í fyrri útgáfur ef eitthvað fer úrskeiðis,
  • unnið í greinum (branches) án þess að skemma aðalútgáfuna,
  • sameinað vinnu margra í sama verkefni á rekjanlegan hátt.
Myndband: Fyrirlestur 7.1 — Útgáfustýringarkerfi og gagnalíkan Git

Úr stoðefninu Tölvur, stýrikerfi og tölvufærni.

Hvað er GitHub?

GitHub er vefþjónusta fyrir Git-kóðageymslur (repositories) og samstarf. Slík kóðageymsla er iðulega kölluð repo í daglegu tali. Í þessu námskeiði notum við GitHub til að halda utan um verkefni, pull requests, kóðarýni, issues og sameiginlega vinnusögu hópsins.

GitHub býður meðal annars upp á:

  • repositories til að geyma og deila verkefnum,
  • pull requests fyrir tillögur að breytingum og kóðarýni,
  • issues og Projects til að skipuleggja verk,
  • GitHub Pages til að birta skýrslur og verkefni á vef,
  • Actions fyrir sjálfvirkar keyrslur og prófanir.

GitHub reikningur og háskólanetfang

Þið þurfið GitHub reikning sem er tengdur háskólanetfangi ykkar. Ef þið eigið nú þegar GitHub reikning er nóg að bæta @hi.is netfanginu við sem aukatölvupósti (alternate/secondary email) í stillingum GitHub.

Nemendur geta einnig sótt um GitHub Education aðgang, sem getur veitt aðgang að GitHub Pro og ýmsum náms- og þróunartólum án endurgjalds.

Markmið

Eftir þennan hluta ættuð þið að geta:

  • útskýrt muninn á Git og GitHub,
  • klónað geymslu og unnið með hana á eigin tölvu,
  • notað helstu Git-skipanir eins og status, add, commit, pull og push,
  • skrifað skýr og gagnleg commit skilaboð,
  • unnið með branches og pull requests,
  • notað issues til að halda utan um þróun verkefnis og Projects til að skipuleggja verklag,
  • tekið þátt í kóðarýni og samvinnu í GitHub.