Kennsluaðferðir

Kennsluaðferðir námskeiðsins — vendikennsla og teymisnám — og hvað þær þýða fyrir þig.

Námskeiðið er kennt með vendikennslu (flipped classroom) og teymisnámi (team-based learning) — tvær vel rannsakaðar kennsluaðferðir sem eru nemendamiðaðar. Verkefnið er byggt upp sem ör-capstone þar sem námsefni hverrar lotu er beitt á eigið raunverkefni hópsins.

Í vendikennslu kynnast nemendur efninu fyrir tíma — með lesefni, myndbönd eða dæmi — og tíminn sjálfur er notaður í vandamálaúrlausn, umræður og æfingar í hóp. Þetta gefur kennara og nemendum meira svigrúm til að fást við það sem er erfitt, en ekki til að hlusta á fyrirlestur.

Frekara lesefni:

  • Låg, T. & Sæle, R. G. (2019). Does the Flipped Classroom Improve Student Learning and Satisfaction? AERA Open. doi:10.1177/2332858419870489

Teymisnám er skipulögð kennsluaðferð þar sem nemendur vinna í fastsettuð teymi yfir önnina. Hvert námskeið hefst á þekkingarprófi (iRAT og tRAT) sem tryggir að allir séu tilbúnir, og síðan beita teymi niðurstöðunum á teymisvinnu (tAPP). Að lokinni hverri lotu skrifar einstaklingurinn ígrundun (iREF) þar sem hann endurspeglar eigið framlag, hvað gekk vel og hvað mætti bæta — birt á GitHub Pages.

Frekara lesefni:

  • Michaelsen, L. K., Knight, A. B. & Fink, L. D. (2004). Team-Based Learning: A Transformative Use of Small Groups. Stylus.
  • Parmelee, D. et al. (2012). Team-based learning: a practical guide. Medical Teacher, 34(5). doi:10.3109/0142159X.2012.643278

Capstone verkefni er samþætt lokaverkefni þar sem nemendur draga saman þekkingu, færni og reynslu úr námi sínu og beita henni við lausn raunverulegs eða heildstæðs viðfangsefnis. Markmiðið er að sýna fram á getu til að samþætta ólík viðfangsefni og vinna sjálfstætt að flóknu verkefni.

Í þessu námskeiði er um að ræða ör-capstone — byggt á sömu hugmyndafræði, en innan eins námskeiðs. Nemendur samþætta helstu hugtök, aðferðir og verkfæri námskeiðsins í einu heildstæðu verkefni sem endurspeglar raunhæft viðfangsefni og krefst þess að þeir beiti þekkingu sinni í samhengi.

Frekara lesefni:

  • Hauhart, R. C. & Grahe, J. E. (2015). Designing and Teaching Undergraduate Capstone Courses. Jossey-Bass.
ÁbendingLykilhugtök
Skammstöfun Fræðiheiti Lýsing
iRAT Individual Readiness Assurance Test Einstaklingspróf í Inspera í upphafi lotu — hvert og eitt ykkar leysir prófið upp á eigin spýtur, óstutt, til að tryggja að þið séuð undirbúin fyrir efni lotunnar. Þarf ≥5 til að halda áfram.
tRAT Team Readiness Assurance Test Sama próf og iRAT, en núna leysir hópurinn það saman strax á eftir — rætt er þar til samstaða næst um hvert svar. Kennir ykkur að rökstyðja og hlusta á rök annarra.
tAPP Team Application Activity Byrjar á sameiginlegum æfingadæmum sem allir hópar leysa eins — til að æfa tæknina. Síðan beitir hópurinn sömu aðferðafræði á eigið lokaverkefni og gögn. Skilað sem GitHub PR og fer í gegnum kóðarýni innan hópsins.
iREF Individual Reflection Í lok hverrar lotu skrifar hver og einn stutta persónulega ígrundun um eigið framlag — hvað gekk vel, hvað mætti bæta, og hvað lærðist. Birt á GitHub Pages.
iTA Individual Team Assessment Í upphafi næstu lotu spyr kennarinn verkefnastjóra lokinnar lotu spurninga um kóðann og vinnulagið — óundirbúið, til að staðfesta að verkefnastjórinn þekki verkefnið vel og skilji hvað hópurinn skilaði.

Uppbygging námskeiðs

Námskeiðið byggist upp á lotum yfir 14 vikur — sjá kennsluáætlun. Hver lota byggir ofan á þá sem á undan er komin: nemendur nota Git og GitHub og endurtækar skýrslur strax frá fyrstu viku og halda áfram að nota þær í gegnum allt misserið. Þannig er verkefnið alltaf lifandi — ekki æfingadæmi sem er skilað og gleymt.

TL;DR: taktur hverrar lotu

Í stuttu máli fylgir hver lota sama takti: einstaklingar undirbúa sig, taka fyrst einstaklingspróf og síðan teymispróf, hópurinn beitir aðferð lotunnar á eigið verkefni, hver nemandi skilar ígrundun og kennari fylgir eftir með spurningum um ákvarðanir hópsins.

1

iPREP

Einstaklingar undirbúa sig heima, kynna sér lesefni og setja verkefnið í samhengi við lotuna.

heima

2

iRAT/tRAT

Fyrst einstaklingspróf, síðan teymispróf þar sem hópurinn ræðir sömu spurningar.

VRII-148

3

tAPP

Hópurinn beitir aðferð lotunnar á eigið verkefni og gögn.

VRII-148 heima

4

iREF

Hver nemandi skilar stuttri ígrundun um eigin lærdóm og framlag.

heima

5

iTA/Q&A

Eftirfylgni þar sem kennari spyr út í verkefnið og verkefnastjóri skýrir ákvarðanir hópsins.

VRII-148

Hver lota fylgir sama skema:

Skref Tími Hverjir Hvað
iRAT Mánudagur, ný lota byrjar Einstaklingur Þekkingarpróf í Inspera — þarf ≥5 til að halda áfram
tRAT Sami mánudagur, beint á eftir Hópur Sama próf, hópurinn ræðir og kemst að sameiginlegri niðurstöðu
tAPP Allir tímar Hópur Beita sömu tækni á verkefnagögnin ykkar — GitHub PR og kóðarýni (skilað í lok lotu)
iREF Lok lotu Einstaklingur Persónuleg ígrundun — birt á GitHub Pages (skilað í lok lotu)
iTA Mánudagur næstu lotu, beint á eftir iRAT+tRAT Einstaklingur Kennarinn spyr verkefnastjóra um nýafstaðna lotu — spurningar um kóða og vinnulag

Frá lotu til capstone

Sama mynstrið endurtekur sig í gegnum misserið. Munurinn er að viðfangsefnið breytist: í hverri lotu bætist ný aðferð eða nýtt lag ofan á verkefnið. tAPP, iREF og iTA gera vinnuna rekjanlega og fæða hana smám saman inn í tCAP, teymishluta capstone-verkefnisins. Þannig verður capstone-verkefnið ekki sérstakt lokaverkefni sem byrjar í lokin, heldur afrakstur vinnunnar sem hefur verið í gangi allan tímann.

Skipulagsmynd sem sýnir lotur námskeiðsins frá vikum 1 til 14. Hver lota fer í gegnum iRAT/tRAT, tAPP og iREF/iTA. Teymisvinna og eftirfylgni safnast í tCAP, teymishluta capstone-verkefnisins, sem leiðir síðan áfram í iCAP.

1. Lota

iPREP → iRAT/tRAT → tAPP → iREF → iTA

2. Nýtt lag

Hópurinn bætir nýrri aðferð við eigið gagnaverkefni.

3. Rýni

PR, kóðarýni, skjölun og ígrundun gera vinnuna rekjanlega.

4. Capstone

Lögin safnast saman í lokaverkefni, kynningu og einstaklingsígrundun.

Mæting

iTA og iRAT+tRAT fara fram á sama mánudegi í upphafi hverrar lotu. Mæting er ekki skylda, en er eindregið æskileg — ef þið komist ekki, hafið samband við kennara fyrir fram til að finna aðra leið til að leysa undirbúningsprófið (sjá uppbótarverkefni fyrir iRAT).

Að öðru leyti er mætingarskylda frjáls, svo fremi að teymið sé sammála — en hópurinn er hvattur til að nýta sér stoðtímana þar sem kennarinn er til staðar til að hjálpa við úrlausn verkefni lotunnar.

Hópurinn velur verkefnastjóra í upphafi hverrar lotu. Hlutverkum (kóðari, rýnir, verkefnastjóri) skal skipt sem jafnast á milli allra hópmeðlima yfir misserið — enginn á alltaf að vera kóðari, alltaf rýnir eða alltaf verkefnastjóri.

Engin lokapróf — iRAT og tRAT gegna því hlutverki með því að meta þekkingu jafnt og þétt yfir misserið og virkni er mæld í samhengi við raunveruleg verkefni.

Capstone-þráðurinn

Í hverri lotu er tAPP-verkefnið tengt við eigin gagnasafn hópsins. Með hverri lotu bætist nýtt lag: Git-vinnulag, endurtækar skýrslur, regex-hreinsuð gögn, SQL-greiningar, myndræn framsetning — hvert skref byggir ofan á það sem á undan er komið.

Þegar þið eruð að leysa tAPP í hverri lotu eruð þið í raun að leysa hluta af capstone-verkefninu.