Skipanir í Git
Hér eru helstu Git skipanir sem þarf að þekkja til að geta unnið með Git geymslur, ásamt samantekt á lengra komnum skipunum.
Git er öflugt útgáfustjórnunarkerfi sem gerir þér kleift að vinna með kóða og skjöl á skilvirkan hátt. Horfið fyrst á myndskeið 7.2 og 7.3 og lesið síðan yfir helstu skipanirnar sem eru notaðar í Git. Myndskeið 7.4 um fjarlægar kóðageymslur má hugsanlega sleppa eða fara hraðar yfir: það fer ítarlega í atriði sem við leggjum minni áherslu á í þessu námskeiði, en þar er samt margt gagnlegt fyrir þau sem vilja kafa dýpra.
Myndband: Fyrirlestur 7.2 — Skipanalínuviðmót Git
Úr stoðefninu Tölvur, stýrikerfi og tölvufærni.
Myndband: Fyrirlestur 7.3 — Gerð og sameining greina
Úr stoðefninu Tölvur, stýrikerfi og tölvufærni.
Búa til eða klóna geymslu
Búa til nýja Git geymslu í möppu
git initÞetta býr til tóma Git geymslu í núverandi möppu. Í þessu námskeiði er almennt betra að búa fyrst til repo á GitHub og klóna það svo niður á tölvuna. Þá er hægt að stilla strax hvort repo-ið sé opið eða lokað, hvort það innihaldi .gitignore, LICENSE og fleira.
Klóna núverandi geymslu af GitHub
git clone https://github.com/your-username/your-repo.gitSkipunin sækir repo af GitHub og afritar það á tölvuna þína. Ef þú vilt gefa möppunni annað nafn á tölvunni geturðu bætt því aftan við skipunina:
git clone https://github.com/your-username/your-repo.git new-repo-nameMyndband: Fyrirlestur 7.4 — Fjarlægar kóðageymslur
Úr stoðefninu Tölvur, stýrikerfi og tölvufærni.
Unnið með breytingar
Sýna stöðu verkefnis
git statusgit status sýnir hvaða skrár hafa breyst, hvaða breytingar eru óskráðar og hvaða skrár eru komnar í undirbúning fyrir commit.
Bæta skrám við Git
git add filenameÞetta setur tiltekna skrá í undirbúning fyrir commit. Ef þú vilt bæta við öllum breytingum í möppunni geturðu notað:
git add .Skrá breytingar í Git
git commit -m "Lýsing á breytingu"Commit vistar breytingarnar í staðbundinni Git geymslu, þ.e. á tölvunni þinni. Það sendir þær ekki sjálfkrafa á GitHub.
Sameina breytingar og leysa árekstra
Þegar breytingar eru sameinaðar getur verið að árekstrar (merge conflicts) komi upp ef aðrir hafa breytt sömu skránum eða ef breytingar rekast á.
Hvað gerist við merge conflict?
Git getur ekki ákveðið sjálfkrafa hvaða breytingar á að halda og biður þig að leysa áreksturinn. Skrár sem hafa árekstra verða merktar í Git sem óleystar (unmerged).
Hvernig á að leysa merge conflict?
Opnaðu skrárnar sem Git hefur merkt sem í árekstri og leitaðu að merkjum eins og <<<<<<< HEAD og >>>>>>>. Þau sýna hvaða línur rekast á.
Veldu hvaða breytingar eiga að fara í lokaútgáfuna og fjarlægðu árekstramerkin. Þegar breytingarnar hafa verið leystar þarf að bæta skránum aftur við og skrá lausnina:
git add uppfærðar-skrár
git commit -m "Leysti merge conflict"Vinna með submodules
Submodules eru notuð þegar þú vilt vísa í annað Git repo inni í verkefninu þínu. Þetta er gagnlegt þegar annað repo á að vera hluti af verkefninu án þess að afrita innihaldið beint inn í aðalgeymsluna.
Bæta við Git submodule
git submodule add https://github.com/example/example-submodule.git path/to/submoduleÞetta bætir example-submodule við í path/to/submodule og tengir það sem sér Git geymslu.
Sækja submodules eftir klónun
git submodule update --init --recursiveÞetta tryggir að öll submodules séu sótt og sett upp rétt eftir að verkefni hefur verið klónað.
Uppfæra submodules í nýjustu útgáfu
git submodule update --remote --mergeÞetta sækir nýjustu breytingar í hverri submodule og sameinar þær inn í aðalrepo-ið þitt.
Samantektartafla
| Skipun | Lýsing |
|---|---|
git init |
Býr til nýja Git geymslu |
git clone <url> |
Klónar Git geymslu |
git status |
Sýnir stöðu verkefnis |
git add <file> |
Bætir skrá við undirbúning |
git commit -m "msg" |
Skráir breytingar |
git pull origin main |
Sækir nýjustu breytingar |
git push origin main |
Ýtir breytingum á GitHub |
git merge <branch> |
Sameinar breytingar úr öðrum branch |
git submodule add <url> |
Bætir við submodule |
git submodule update --init |
Sækir submodules eftir klónun |
git submodule update --remote |
Uppfærir submodules í nýjustu útgáfu |
git checkout <branch> |
Skipta yfir í annan branch |
git checkout -b <branch> |
Búa til og skipta yfir í nýjan branch |
git branch -d <branch> |
Eyða branch |
git commit --amend -m "msg" |
Breytir síðasta commit færslu |
git push --force |
Ýtir breytingum og skrifar yfir fyrri gögn; notið með varúð |
Þetta eru helstu skipanirnar sem þið þurfið til að vinna með Git á skipulagðan hátt: sjá stöðu, skrá breytingar, sækja nýjustu útgáfu, senda eigin breytingar og vinna með greinar án þess að missa yfirsýn.