Inn- og útflutningur gagna
Innflutningur og útflutningur gagna í gagnagrunnum, t.d. með CSV skrám.
SQLite
Innflutningur gagna í SQLite
Til að setja inn stór gagnasöfn í töflur í SQLite er hægt að nota .import skipunina. Þessi aðferð gerir það auðveldara að flytja inn gögn úr CSV skjölum í stað þess að nota INSERT skipanir trekk í trekk.
.import skipunin í SQLite les inn gögn úr tiltekinni skrá og býr til töflu með þeim gögnum. Dæmi:
-- Import data from skra.csv into a table called Nafn
.import skra.csv Nafn Það er mikilvægt að passa að nota rétt aðskilnaðartákn. Sjálfgefið er aðskilnaðartáknið |, en það er hægt að breyta því með .separator skipuninni:
-- Set the separator to semicolon
.separator ;
-- Import data with the new separator
.import skra.csv Nafn Útflutningur gagna
SQLite gerir einnig auðvelt að flytja út gögn með notkun á .output og öðrum skipunum til að skrifa gögn út í skrár, til dæmis á CSV formi. Til að flytja út gögn á CSV formi, notum við eftirfarandi skipanir:
-- Include headers in the output
.headers on
-- Set the mode to CSV
.mode csv
-- Set the separator to semicolon
.separator ;
-- Specify the output file
.output test.csv
-- Export data from the operators table
SELECT * FROM operators;
-- Stop writing to the output
file .output
.output skipunin stýrir hvert úttak fyrirspurnar fer, og í þessu tilviki skrifar gögnin út í skrána test.csv.
PostgreSQL
Innflutningur gagna
Til að setja inn stór gagnasöfn í töflur í PostgreSQL er hægt að nota \copy skipunina í psql. Þessi aðferð gerir það auðveldara að flytja inn gögn úr CSV skrám.
Dæmi um hvernig á að nota \copy:
-- Import data from skra.csv into a table called nafnið
\
copy nafnið FROM 'skra.csv' DELIMITER ',' CSV HEADER;Útflutningur gagna
Einnig er hægt að flytja út gögn með \copy skipuninni í PostgreSQL. Til að flytja út gögn á CSV formi, notum við eftirfarandi skipanir:
-- Export data from the operators table to a CSV file
\copy
(SELECT * FROM operators) TO 'operators.csv' WITH (FORMAT CSV, HEADER);