sequenceDiagram
participant F as Forritið þitt
participant V as Vefþjónustan
F->>V: Beiðni (request) — "gefðu mér gögn um X"
V-->>F: Svar (response) — stöðukóði + gögn
Inngangur
Hvað vefþjónusta (API) er, hvers vegna hún kemur í stað handvirkrar niðurhalunar, og hvernig gögn sótt um API halda vinnuflæðinu endurtakanlegu.
Vandamálið sem API leysir
Þú þarft gögn um jarðskjálfta síðustu viku. Þú ferð á vefinn, finnur töfluna, afritar hana inn í Excel, lagar dagsetningarnar og vistar skjalftar_endanlegt_v3.xlsx.
Viku síðar þarftu sömu greiningu með nýjum gögnum. Þú gerir þetta allt aftur.
Þetta brýtur allt sem lotan um endurtækar skýrslur snerist um: enginn getur endurtekið skrefin, ekki einu sinni þú sjálf/ur eftir mánuð. Handvirka afritunin er hvergi skráð og villur í henni eru ósýnilegar.
Vefþjónusta (e. API, Application Programming Interface) er leiðin framhjá þessu. Í stað þess að þú smellir á vefsíðu sem er hönnuð fyrir augu, þá biður forritið þitt um gögnin í sniði sem er hannað fyrir vélar. Sama skipun sótt á morgun skilar uppfærðum gögnum án þess að nokkur snerti mús.
Vefsíða fyrir menn, API fyrir vélar
Sama þjónustan býður oft hvort tveggja. Berðu saman:
| Vefsíða | Vefþjónusta (API) | |
|---|---|---|
| Ætluð | fólki | forritum |
| Skilar | HTML: litum, letri, valmyndum | gögnum: JSON eða CSV |
| Uppsetning | breytist við hverja endurhönnun | skilgreind og stöðug |
| Endurtakanlegt | nei — handavinna | já — ein skipun |
Þess vegna er API-leiðin ekki bara þægilegri, hún er forsenda þess að greiningin þín sé endurtakanleg.
API stendur fyrir Application Programming Interface — viðmót sem eitt forrit býður öðru. Á íslensku er talað um vefþjónustu þegar viðmótið er aðgengilegt yfir vefinn, sem er það sem við fjöllum um hér.
Hvernig samtalið lítur út
Öll samskipti við vefþjónustu fylgja sama einfalda mynstri:
Þú sendir beiðni og færð svar. Ekkert annað gerist. Það sem þú þarft að læra er:
- hvernig beiðnin er byggð upp — hvaða slóð, hvaða skilyrði,
- hvernig lesa á svarið — tókst þetta, og hvað kom til baka,
- hvernig gögnin úr svarinu verða að töflu sem þú getur unnið með.
Þessi þrjú skref eru einmitt kaflarnir sem á eftir koma.
Dæmi: sama spurning, tvær leiðir
Segjum að þig langi að vita hvenær geymslan HI-IDN/IDN302G var síðast uppfærð.
Handvirkt: opna github.com, finna geymsluna, skruna niður, lesa dagsetningu, skrifa hana hjá þér.
Um vefþjónustu: biðja um slóðina
https://api.github.com/repos/HI-IDN/IDN302G
og fá til baka gagnaskrá þar sem meðal annars geta staðið reitir eins og:
{
"full_name": "HI-IDN/IDN302G",
"description": "Námsefni fyrir námskeiðið Upplýsingaverfræði IÐN302G við Háskóla Íslands. Efnið er skrifað í Markdown. Inniheldur einnig gagnaskrár fyrir sýnidæmi.",
"updated_at": "2026-08-26T09:33:45Z",
"stargazers_count": 0
}
Þessa slóð máttu opna í vafra beint — prófaðu. Það sem þú sérð er nákvæmlega það sama og forritið þitt fær.
Reglulegar segðir eru í sömu lotu og eru systurtól: API skilar þér gögnum, og reglulegar segðir hjálpa þér að hreinsa textann sem kemur út úr þeim.