Erindreka-dagbók (AGENT_LOG.md)

Hvað AGENT_LOG.md er, hvenær á að skrá í hana og hvernig hún gerir notkun erindreka sýnilega og rekjanlega.

AGENT_LOG.md heldur utan um marktæka notkun erindreka í verkefninu. Markmiðið er ekki að skrá hvert einasta prompt, heldur að gera sýnilegt hvar AI hafði áhrif á vinnuna og hvað teymið yfirfór.

Þetta er hluti af rekjanleika verkefnisins: teymið ber ábyrgð á lokavinnunni, líka þegar erindreki hjálpaði til.

Hvenær á að skrá í AGENT_LOG.md?

Góð regla er að byrja nýja færslu í upphafi hvers branch þar sem erindreki er notaður marktækt.

Ein færsla per branch er oft nóg. Uppfærið sömu færslu á meðan unnið er á branchinu.

Skráið sérstaklega þegar erindreki hjálpar við:

  • kóða,
  • gagnahreinsun,
  • SQL fyrirspurnir,
  • texta eða skýrslur,
  • uppsetningu Quarto/GitHub Pages,
  • kóðarýni eða villuleit.

Hvað á að skrá?

Færsla á að svara:

  • hvaða branch var unnið á,
  • hver notaði agentinn,
  • hvað var beðið um,
  • hvað breyttist,
  • hvaða skrár breyttust,
  • hvað teymið yfirfór,
  • hvað var óljóst, rangt eða lagað handvirkt.

Hver á að uppfæra loggið?

Sá sem submit-ar breytinguna ber ábyrgð á AGENT_LOG.md. Rýnandi eða Copilot reviewer á ekki að skrifa loggið fyrir viðkomandi.

Rýnandi getur hins vegar bent á ef PR-lýsing, commit eða skrár sýna að erindreki var notaður en AGENT_LOG.md vantar eða er óskýrt.

Falið sniðmát

Í teymisrepo er gott að hafa:

  • .AGENT_LOG.md — falið sniðmát fyrir nýjar færslur,
  • AGENT_LOG.md — raunverulega loggskráin sem teymið fyllir út.

Sniðmát er í templates/.AGENT_LOG.md.