Skipanaskrár

Skipanaskrár halda utan um SQL skipanir svo hægt sé að endurkeyra þær án þess að skrifa þær aftur. Tilvalið fyrir útgáfustýringu og endurkeyrslu.

Algengt er að búa til skrár sem innihalda SQL skipanir til að skilgreina og setja upp töflur.

Skipanaskrár fyrir SQLite

Innlestur SQL skipana er gert með .read skipuninni, sem les inn SQL skipanir úr skrá og framkvæmir þær:

-- Read and execute commands from a file 
sqlite3 grunnur.db < skipanir.sql 

Athugið: - Takið eftir að goggurinn < er notaður til að lesa inn skipanir úr skrá. - Passið að nota ekki > gogginn, því hann skrifar yfir gögn í skránni.

Til að búa til skrá með öllum skipunum sem skilgreina núverandi gagnagrunn, notum við .dump skipunina:

-- Dump all SQL commands to a file 
.dump > skipanir.sql
-- Export commands for a specific table, for example, operators 
.dump operators 

.dump skipunin skrifar SQL skipanir sem endurskapa núverandi töflur og gögn, sem er gagnlegt fyrir afritun og flutning gagnagrunns.

Skipanaskrár fyrir PostgreSQL

Til að lesa inn SQL skipanir úr skrá, notum við psql skipunina:

-- Read and execute commands from a file
psql -U notandi -d gagnagrunnur -f skipanir.sql

Til að búa til skrá með öllum SQL skipunum sem skilgreina núverandi gagnagrunn, er hægt að nota pg_dump skipunina:

-- Dump all SQL commands to a file
pg_dump -U notandi gagnagrunnur > skipanir.sql

.dump skipunin skrifar SQL skipanir sem endurskapa núverandi töflur og gögn, sem er gagnlegt fyrir afritun og flutning gagnagrunns.