Hraðkynning
Hraðkynning er stutt, markviss frásögn sem kynnir meginatriði verkefnis á áhrifaríkan hátt með skýrri setningu sem útskýrir hvað þú ert að gera, hvað er í húfi, og af hverju það skiptir máli.
Hraðkynningar
Hraðkynningar eða „lightning talks“ eru stuttar, markvissar kynningar sem eru hannaðar til að miðla meginatriðum verkefnis á áhrifaríkan hátt. Tímalengdin er oft mjög takmörkuð, sem þýðir að nauðsynlegt er að einbeita sér að kjarna málsins og segja það sem skiptir mestu máli á skýran hátt. Hér eru algengar tegundir af hraðkynningum:
Hefðbundin hraðkynning
- Tímalengd: 5-10 mínútur
- Glærur: Valfrjálst, og kynningarmaður stjórnar þeim sjálfur
- Markmið: Koma flóknu efni á framfæri á sem stystum tíma, án þess að missa kjarna málsins.
PechaKucha
- Tímalengd: Nákvæmlega 6 mínútur og 40 sekúndur
- Glærur: 20 glærur sem fara sjálfkrafa áfram á 20 sekúndna fresti
- Markmið: Tala minna, sýna meira. Þetta format leggur áherslu á myndræna framsetningu og skýrleika.
Reykjavík DataBeers
Reykjavík DataBeers, haldið fjórum sinnum á ári, notar PechaKucha-stíl. Kynningarnar snúast um gagnamál á Íslandi, og hver kynning notar ca 20 glærur. Heildarlengd er um 7 per fyrirlesara og svo spurningar úr sal. Ávallt 4 fyrirlesarar á hverju kvöldi. Opið öllum og frítt inn. Best að fylgjast með næstu viðburðum á Facebook síðu DataBeers.
Nemendur í Upplýsingarverkfræði og Viðskiptagreind eru eindregið hvattir til að mæta og hlýða á erindin. Þetta er gott tækifæri til að kynnast fólki í atvinnulífinu og hvernig fyrirtæki eru að vinna í gagnadrifnum ákvörðunartökum.
Ignite
- Tímalengd: Nákvæmlega 5 mínútur
- Glærur: 20 glærur sem fara sjálfkrafa áfram á 15 sekúndna fresti
- Markmið: Stutt og hnitmiðuð kynning þar sem hver glæra fær mjög stuttan tíma.
3-mínútna saga
„3-mínútna saga“ er algeng aðferð í hraðkynningum þar sem markmiðið er að útskýra meginatriði málsins á aðeins þremur mínútum. Þetta þýðir að þú þarft að vera sérstaklega skýr með því hvað þú vilt koma á framfæri.
Hvernig nýtist 3-mínútna saga?
- Einbeiting á kjarna málsins: Hún hjálpar þér að komast beint að kjarna málsins án þess að flækja umræðuna með óþarfa upplýsingum.
- Undirbúningur fyrir stutt samtöl: Ef þú getur fært kynningu niður úr 30 mínútum í 3 mínútur, ertu betur undirbúinn fyrir óformleg samtöl, til dæmis við stjórnendur eða viðskiptavini.
- Einblína á hvað er mikilvægt: Hraðkynning er sérstaklega gagnleg þegar þú þarft að útskýra hvað þú ert að vinna að á stuttum tíma og með áhrifaríkum hætti.
Lyfturæða
Lyfturæða eða „elevator pitch“ er stutt, áhrifarík kynning sem tekur oft innan við 30 sekúndur. Hún er hönnuð til að ná athygli hlustandans og koma skilaboðum hratt og örugglega á framfæri. Hugmyndin er að þú ættir að geta útskýrt hugmynd þína á sama tíma og tekur að ferðast milli hæða í lyftu.
Helstu atriði í lyfturæðu eru:
- Hver þú ert eða hvað þú gerir: Skýr útskýring á því hver þú ert eða hvað verkefnið snýst um.
- Hvaða lausn þú býður upp á: Hvernig lausn þín eða hugmynd hefur virði fyrir viðkomandi.
- Hvers vegna það skiptir máli: Af hverju ætti hlustandinn að hafa áhuga á þessu?
Dæmi um lyfturæðu væri til dæmis:
„Ég er að þróa nýtt greiningartól fyrir Daenerys Targaryen sem safnar gögnum frá öllu Westeros til að greina hvar stuðningur hennar er sterkastur. Með þessum upplýsingum getur hún skipulagt herferðir gegn Lannisterunum og gert hraðari ákvarðanir um hvaða bandamenn að semja við. Með þessu tryggjum við sigur hennar á the Iron throne.“
Stóra myndin
Það er mikilvægt að hugsa strax um „stóru myndina“ í hverri hraðkynningu. Þetta er ein lykilsetning sem sameinar allar mikilvægustu upplýsingar:
- Hvað þú ert að gera: Skýr lýsing á því verkefni sem þú ert að vinna að.
- Hvað er í húfi: Útskýra af hverju verkefnið er mikilvægt og hvað það skilar.
- Skýr og hnitmiðuð setning: Lyfturæða eða stutt kynning á ekki að vera óljós – hún þarf að vera skýr og markviss.
„I would have written a shorter letter, but I did not have time.“ – Blaise Pascal
Þessi setning lýsir áskoruninni við að hanna stutta en áhrifaríka kynningu. Það krefst mikillar undirbúnings að hnitmiða upplýsingar á þann hátt að þær hafi hámarksáhrif.