Sameining niðurstaðna

UNION í SQL sameina niðurstöður úr tveimur eða fleiri fyrirspurnum og hvernig þær vinna með endurtekningar.

Sameining niðurstaðna

Í SQL eru UNION og UNION ALL notaðar til að sameina niðurstöður úr tveimur eða fleiri fyrirspurnum í eina útkomu. Þær hjálpa til við að vinna með gögn úr mörgum fyrirspurnum á einfaldan hátt.

UNION

UNION sameinar niðurstöður tveggja eða fleiri fyrirspurna og skilar aðeins einstökum línum. Það fjarlægir sjálfkrafa afrit, þannig að hver lína birtist aðeins einu sinni, jafnvel þó hún komi fyrir í báðum fyrirspurnunum.

UNION ALL

UNION ALL virkar á sama hátt og UNION, nema að það fjarlægir ekki afrit. Þetta þýðir að allar línur, þar með talið afrit, verða með í niðurstöðunum. Þetta getur verið gagnlegt þegar þú vilt sjá allar línur án þess að sameina eða samræma þær.

Munur á UNION og UNION ALL:

  • UNION: Skilar einstökum línum þar sem afrit eru fjarlægð.
  • UNION ALL: Skilar öllum línum, þar með talið afritum.

Bæði UNION og UNION ALL krefjast þess að fyrirspurnirnar sem sameinaðar eru hafi sama fjölda dálka og að gagnatýpurnar í samsvarandi dálkum séu samhæfar. Hér er ekki átt við að dálkarnir þurfa að heita það sama, heldur að þeir þurfi að hafa sömu gagnatýpu. Heitið sem mun birtast munu vera samkvæmt fyrstu fyrirspurninni í sameiningunni.

UNION er umtalsvert dýrari að keyra en UNION ALL, þar sem UNION þarf að athuga hvort línur séu eins og hún fer yfir niðurstöðurnar.