Að lesa erindreka

Vinnuslóð erindreka er texti með mynstri. Regex gerir hana að gögnum sem hægt er að telja og rýna.

Að lesa hvað erindreki er að gera

Regex getur líka hjálpað okkur að lesa vinnuslóð eftir erindreka. Þegar erindreki vinnur í kóðageymslu birtast oft línur sem líta svona út:

Start 'github-mcp-server' MCP server
Start 'playwright' MCP server
Search \.card-grid
Search ^description:
View 5 files
View docs/_quarto.yml:1-80
Store comment
Store fix

Þetta er ekki gagnatafla, en það er samt mynstur í textanum. Við getum flokkað línurnar:

Spurning Mynstur
Hvaða MCP-þjónar voru ræstir? ^Start '([^']+)' MCP server$
Hverju leitaði erindrekinn að? ^Search (.+)$
Hvaða skrár voru opnaðar? ^View (.+)$
Voru athugasemdir vistaðar? ^Store comment$
Voru lagfæringar vistaðar? ^Store fix$

Úr þessu má lesa vinnubrögðin: erindrekinn setur upp umhverfi, leitar að mynstrum, skoðar viðeigandi skrár og skráir niður athugasemdir eða lagfæringar.

AthugasemdLítur þetta út eins og code review?

Ef vinnuslóðin inniheldur margar Search línur, View ... á kóðaskrár, og síðan Store comment eða Store fix, er mjög líklegt að erindrekinn sé í rýni eða undirbúningi rýni. Hann er ekki bara að keyra kóða; hann er að safna samhengi, finna möguleg vandamál og móta athugasemdir.

Æfing

Hér er brot úr vinnuslóð eftir erindreka:

Setting up environment
Start 'github-mcp-server' MCP server
Start 'playwright' MCP server
Search 7 times
\.card-grid
^description-meta:
install\.packages\(
```{r}|```{\.r|```{r}|\{\.r \.cell-code\}
\.nav-footer
\blibrary\(
^description:
Search \.card-grid|\.card\b
View 5 files
docs/styles/hi.scss:420-710
docs/_quarto.yml:1-80
docs/styles/hi-book.scss:370-430
.github/workflows/publish.yml:1-140
docs/reproducible-reports/quarto.qmd:1-160
Search nav-footer\b
View 3 files
docs/storytelling/dashboard.qmd:40-90
docs/sql-basics/database_interaction.qmd:110-180
docs/storytelling/interactive.qmd:1-150
Search ```\{r\}|```\{\s*r\s*[,}]
Call to vote_memory
Search knitr|rmarkdown|renv
Store comment
Store comment
Search \.card-grid\.numbered
Store fix
  1. Finndu allar línur sem byrja á Search.
  2. Finndu öll regex-mynstur sem erindrekinn leitaði að.
  3. Finndu allar línur sem vísa í skrá og línubil, til dæmis docs/_quarto.yml:1-80.
  4. Teldu hversu oft erindrekinn vistaði athugasemd (Store comment) eða lagfæringu (Store fix).
  5. Svaraðu í einni málsgrein: lítur þetta út eins og code review vinna? Hvaða línur styðja svarið?

Athugaðu að Search 7 times er samantekt úr viðmótinu. Línurnar beint á eftir eru mynstrin sem voru notuð í þeim sjö leitum.

Mynstur til að byrja með:

^Search (.+)$
^(.+\.(qmd|yml|yaml|scss)):\d+-\d+$
^Store (comment|fix)$
^Start '([^']+)' MCP server$
AthugasemdAð lesa erindreka er gagnalæsi

Markmiðið er ekki bara að finna línurnar. Markmiðið er að læra að lesa ferlið: hvaða verkfæri eru ræst, hverju er leitað að, hvaða skrár eru skoðaðar og hvort niðurstaðan sé athugasemd, lagfæring eða eitthvað annað.