Greinar
Leiðbeiningar um hvernig á að nota branches í Git, mikilvægi þeirra í vinnuflæði og góðar venjur varðandi nafngiftir.
Vinna án þess að skemma aðalútgáfuna
Branches (greinar) í Git eru leið til að vinna sjálfstætt á breytingum án þess að hafa áhrif á aðalútgáfu (t.d. main). Þetta gerir kleift að vinna í nýjum eiginleikum, lagfæringum og tilraunum á skipulagðan hátt.
Af hverju að nota branches?
- Aðskilja vinnu – Hægt er að vinna í nýjum eiginleikum án þess að hafa áhrif á aðalútgáfu verkefnisins.
- Samvinna – Teymi geta unnið á mismunandi branches og sameinað breytingar þegar þær eru tilbúnar.
- Öryggi – Ef eitthvað fer úrskeiðis í breytingum er auðvelt að skipta aftur yfir í aðalútgáfuna.
Algengar Git skipanir fyrir branches
| Aðgerð | Skipun |
|---|---|
| Skoða allar greinar í verkefninu | git branch |
| Búa til nýja grein | git branch branch-nafn |
| Skipta yfir í grein | git checkout branch-nafn |
| Búa til og skipta yfir í nýja grein | git checkout -b branch-nafn |
| Sameina grein við aðalgreinina | git checkout main og síðan git merge branch-nafn |
| Eyða grein eftir sameiningu | git branch -d branch-nafn |
Ef grein hefur ekki verið sameinuð en þú vilt samt eyða henni, þarf að nota -D í stað -d.
Góðar venjur um nafngiftir á branches
Það er mikilvægt að velja lýsandi nöfn á branches frekar en að nota eigið nafn eða almenna skammstöfun.
Góð branch nöfn
feature-user-authentication— nýr eiginleikibugfix-login-error— lagfæringhotfix-payment-gateway— bráðalagfæringsandbox-experiment— tilraun eða prófun
Branch nöfn sem ætti að forðast
helga— segir ekki hvað greinin gerirtest— of almenntnew— óljóst hvaða nýjung er átt við
Ef branch er bara fyrir tilraunir eða persónulega notkun, er í lagi að nota sandbox- sem forskeyti, t.d. sandbox-helga.
Sameining greina (merging) og merge conflicts
Þegar grein er sameinuð getur komið upp merge conflict ef breytingar stangast á við breytingar sem þegar eru í aðalútgáfunni.
Til að leysa merge conflict:
- Opnið skrána sem hefur árekstur (
<<<<<<< HEADog>>>>>>>merki). - Veljið hvaða breytingar eiga að haldast.
- Fjarlægið árekstramerkin.
- Vistið skrána og bætið breytingunni við Git:
git add uppfærð-skrá
git commit -m "Leysti merge conflict"Samantekt
| Skipun | Lýsing |
|---|---|
git branch |
Sýnir öll branches í verkefninu |
git branch <nafn> |
Býr til nýtt branch |
git checkout <branch> |
Skipta yfir í annað branch |
git checkout -b <branch> |
Býr til og skipta yfir í nýtt branch |
git merge <branch> |
Sameinar annað branch við það sem er nú þegar valið |
git branch -d <branch> |
Eyðir branch eftir sameiningu |
Þessi skipanir duga fyrir algengt branch-vinnuflæði: búa til grein, vinna breytingar, sameina þær og fjarlægja greinina þegar hún hefur lokið hlutverki sínu.