Villur og framlög
Hvernig þú tilkynnir villur og leggur til breytingar á námsefninu.
Ef þú sérð villu, óskýrt orðalag eða eitthvað sem mætti útskýra betur, þá eru tvær góðar leiðir:
- opna GitHub issue með stuttri lýsingu,
- senda Pull Request með lagfæringu eða viðbót.
Ef breytingin snýr að innihaldi námskeiðsbókarinnar á hún að fara í docs/, ekki í _site/. _site/ er afleidd HTML útgáfa sem Quarto býr til.
Pull Request þarf ekki að vera stórt framlag. Góð framlög geta til dæmis verið:
- að laga innsláttarvillu,
- að skýra setningu sem er óljós,
- að bæta við litlu sýnidæmi,
- að benda á brotinn hlekk,
- að bæta README, leiðbeiningar eða sniðmát.
Best er að hafa eitt Pull Request fyrir hverja afmarkaða breytingu og lýsa stuttlega hvað var breytt og hvers vegna.