Slæm myndræn framsetning
Slæm notkun á gröfum, eins og 3D grafík og graf sem byrjar ekki á núlli, getur auðveldlega valdið misskilningi og ruglingi. Mikilvægt er að velja skýra og einfaldlega túlkanlega framsetningu gagna til að tryggja réttan skilning lesenda.
Slæm notkun á gröfum
Kleinuhringjarit
Kleinuhringjarit ætti að forðast eins og heitan eldinn. Þau eru enn erfiðari fyrir augað að greina en skífurit, þar sem lesandinn þarf að bera saman arc-lengdir, sem er flóknara en að bera saman horn eða svæði. Að reyna að meta hver er munurinn á tveimur arc-lengdum getur valdið misskilningi og er mjög óskilvirkt. Hins vegar ætti einnig að reyna að forðast skífurit almennt, nema í sértækum tilfellum þar sem hlutfallsleg tengsl hluta við heild skipta mestu máli, þar sem þau geta einnig verið ruglingsleg og lítið gefandi þegar flóknari samanburðir eru nauðsynlegir.

3D gröf
3D gröf ætti að forðast þegar kemur að gagnamiðlun. Þau bæta oft ekki við upplýsingarnar sem verið er að sýna og geta í raun ruglað lesendur með óþarfa sjónrænum áhrifum og flækjum. Sjónræn dýpt í slíkum gröfum getur gert það erfiðara að túlka gögnin rétt og leitt til rangra ályktana, sérstaklega þegar flokkarnir verða óskýrir eða óviðkomandi dýpt bætist við.
Í eftirfarandi mynd frá Kópavogs- og Garðapóstinum má sjá dæmi af þrívíðu súluriti fyrir íbúasamsetningu í Garðabæ. Í þessu tilviki væri betra að fella út þrívíddina og einfalda grafið.

Sama graf, án óþarfa þrívíddar:

Kostir:
- Getur verið notað í stærðfræði greiningu, en þetta á ekki við um gagnamiðlun.
Gallar:
- Ruglingsleg framsetning fyrir flesta notendur.
- Óþarfa sjónræn truflun.
- Flokkar geta litið út fyrir að vera stærri eða minni en þeir eru í raun.
Tvöfaldur Y-ás
Tvöfaldur Y-ás veldur oft ruglingi þar sem það getur tekið lesandann tíma að átta sig á hvaða Y-ás tilheyrir hvaða gögnum. Ef tvö gögn eru sýnd saman á sama grafi er mikilvægt að gera það skýrt og aðgengilegt.
Hér kemur dæmi um hvernig tvöfaldur y-ás getur valdið misskilningi hjá lesendum og er oft ekki besta lausnin fyrir gagnamiðlun. Myndin er byggð frá bloggfærslu John Mackintosh.

Myndin sýnir tvöfaldan y-ás, þar sem annars vegar eru dagleg tilfelli af COVID-19 sýkingum (blár litur) og endursýkingum (gulur litur), og hins vegar sýnir grá lína og punktar hlutfall endursýkinga sem prósentu. Þó að þetta virðist vera góð leið til að setja fram tvö ólík gagnasöfn saman í einu grafi, er það oft ruglandi fyrir lesendur.
Ástæðan er sú að tvöfaldur y-ás krefst þess að lesandinn fylgist með tveimur mismunandi skölum samtímis. Í þessu tilviki þarf lesandinn að skilja að bláar og gular súlur tengjast y-ásnum vinstra megin, en grá línan tengist y-ásnum hægra megin. Þetta getur verið villandi og gert það erfiðara að átta sig á samhengi og tengslum milli gagnanna. Tvöfaldur y-ás getur einnig ýtt undir villandi túlkun, þar sem tvö mjög ólík gagnasöfn eru lögð saman án þess að sýna hvort þau eru raunverulega í samhengi við hvort annað.
Kostir:
- Getur sýnt tvö mismunandi gagnasöfn á sama tíma.
Gallar:
- Ruglingslegt fyrir lesendur.
- Tekur tíma að skilja gögnin.
Leiðir til að gera þetta aðgengilegra:
- Ekki sýna Y-ás númer 2 – setjið frekar texta á gögnin.
- Setjið tvö gröf ofan á hvort annað með sama X-ás.
- Lita Y-ás og gögnin í sama lit.
Dæmi um villandi gröf
Graf sem byrjar ekki á 0
Graf sem byrjar ekki á 0 getur verið mjög villandi. Hér er dæmi af Fox News þar sem línurit byrjar á 34 í staðinn fyrir 0. Það veldur því að munur sem er aðeins 4% lítur út fyrir að vera mun stærri en hann er í raun.

Söma mistök má sjá á fréttaskoti um Obamacare þátttöku. Tölurnar 6.000.000 og 7.066.000 eru settar upp á mjög villandi hátt með lóðrétta ásnum sem gefur til kynna mun meiri mun á tölunum en er í raun.

Villandi láréttur ás
Hér er annað dæmi frá Fox News þar sem jafnlöng bil eru notuð fyrir mismunandi tímabil á lárétta ásnum. Þetta veldur því að síðasta ár og síðasta vika fá jafnmikið pláss á ásnum, sem gefur lesendum þá tilfinningu að breytingin sé mun meiri en hún er í raun.

Á ársreikningi Strætó má sjá slæma notkun á láréttum ásum. Við sjáum hér nokkur gröf sem má finna á sjálfbærnisskýrslu Strætó 2021.

Hér má sjá slæma uppsetningu þar sem gildin á lárétta ásinum eru öfug miðað við eðlilega röð. Það getur valdið því að lesandi misskilur gögnin.
Þessar myndir sýna hvernig hægt er að blekkja áhorfendur með því að spila með ásana í gröfum. Þegar ásarnir eru ekki réttir eða sýna upplýsingar á villandi hátt, getur það leitt til rangra túlkunar gagna.
Samantekt
Það er mikilvægt að vanda til verka þegar kemur að notkun á gröfum. Slæm notkun, eins og 3D-grafík eða graf sem hefur misvísandi ása (hvort sem það er lóðrétti eða lárétti ásinn), getur leitt til misskilnings og villandi túlkunar. Gögn þurfa að vera sett fram á skýran og einfaldan hátt til að auðvelda notendum að lesa og skilja upplýsingar.