Ábyrg notkun
Reglur, viðmið og góð vinnubrögð við notkun gervigreindar í námi og verkefnum.
Háskóli Íslands fjallar um gervigreind sem hluta af námi, kennslu og rannsóknum og leggur áherslu á að hún sé notuð á ábyrgan hátt í háskólasamfélaginu. Sjá yfirlit Setbergs um gervigreind við Háskóla Íslands.
Á síðu Setbergs um gervigreind fyrir nemendur er sérstaklega tekið fram að gervigreind geti stutt við nám, til dæmis við að skipuleggja vinnu, móta hugmyndir, æfa skilning og undirbúa verkefni. Þar er jafnframt lögð áhersla á að notkunin eigi að styðja við námið, ekki koma í staðinn fyrir það. Nemandi ber áfram ábyrgð á eigin verkefnum, heimildavinnu, röksemdafærslu og skilningi.
Setberg fjallar líka um ábyrga og örugga notkun gervigreindar. Þar eru lykilatriði eins og akademísk vinnubrögð, höfundarréttur, persónuvernd, gagnaöryggi, hlutdrægni, siðferðileg álitamál og reglur háskólans.
Notkun gervigreindar við fræðileg skrif
Enn er í mótun hvernig eigi að tilgreina notkun gervigreindar við fræðileg skrif og reglur geta verið mismunandi milli tímarita og útgefenda. Mörg fræðitímarit og útgefendur, svo sem IEEE, hafa þó þegar sett sér sérstaka stefnu um notkun gervigreindar (AI policy).
Samkvæmt stefnu IEEE þarf höfundur að gera grein fyrir notkun gervigreindar ef hún er notuð til að búa til efni fyrir grein, til dæmis texta, myndir, gröf eða kóða. Slíka notkun skal tilgreina í þakkarkafla (Acknowledgments) og taka fram hvaða gervigreindarkerfi var notað, í hvaða hluta greinarinnar og með hvaða hætti eða að hvaða marki.
IEEE gerir jafnframt greinarmun á efnissköpun og málfarslegri yfirferð. Ef gervigreind er eingöngu notuð til að bæta málfar, stafsetningu eða framsetningu texta er almennt ekki skylt að greina frá notkuninni, þó IEEE mæli með því að hún sé tilgreind.
Því er mikilvægt að skoða alltaf reglur þess tímarits eða útgefanda sem ætlunin er að senda grein til, þar sem kröfur um upplýsingagjöf geta verið ólíkar og eru enn að þróast.
Myndband: IEEE Policy on the use of content generated by AI
Úr IEEE Author Center.
Meginreglan er einföld: höfundar bera alltaf ábyrgð á efninu. Gervigreind getur verið hjálpartæki, en hún getur ekki talist höfundur og getur ekki tekið ábyrgð á niðurstöðum, heimildum, kóða eða fullyrðingum.
Þannig má hugsa þetta:
- Gervigreind sem býr til efni → upplýsa um notkun.
- Gervigreind sem eingöngu lagfærir málfar → upplýsingagjöf er æskileg, en almennt ekki krafa.
Dæmi um yfirlýsingu í þakkarorðum
Ef gervigreind var notuð sem almenn aðstoð við hugmyndavinnu, málfar, forritun eða yfirferð má tilgreina það í þakkarorðum, neðanmálsgrein eða öðrum stað sem kennari/útgefandi biður um.
Ákveðnir hlutar þessa verkefnis voru unnir með aðstoð gervigreindartólsins [nafn tóls].
Tólið var notað til að [lagfæra málfar / aðstoða við forritun / yfirfara hugmyndavinnu /
taka saman drög]. Höfundur yfirfór og ber ábyrgð á öllum texta, kóða, niðurstöðum og
fullyrðingum verkefnisins.Þetta er ekki töfraformúla sem passar alltaf. Aðalatriðið er að lesandi geti séð hvaða tól var notað, í hvað það var notað og hver ber ábyrgð á lokaafurðinni.
Hvar á að skrá notkunina?
| Staður | Hvenær hentar það? |
|---|---|
| Þakkir eða stutt yfirlýsing | Þegar gervigreind var notuð sem almenn aðstoð, til dæmis við málfar, hugmyndavinnu eða minni háttar forritun. |
| Aðferðafræði | Þegar gervigreind er hluti af rannsóknaraðferðinni, til dæmis við gagnaúrvinnslu, flokkun, útdrátt eða greiningu. |
Viðauki eða AGENT_LOG.md |
Þegar þarf að sýna nánar hvaða fyrirmæli voru notuð, hvaða svör komu og hvernig niðurstaðan var yfirfarin. |
| PR-lýsing eða commit message | Þegar gervigreind var notuð í GitHub-vinnuflæði til að búa til eða breyta kóða, skjölun eða greiningu. |
Þrjár meginreglur um mörkin
| Notkun | Mat | Hvað þarf að gera? |
|---|---|---|
| Málfarsleiðréttingar, hugmyndavinna, samantekt á eigin texta eða einföldun á kóða sem þú skilur | Yfirleitt í lagi | Tilgreina notkun þegar hún skiptir máli eða ef reglur námskeiðs/útgefanda krefjast þess. |
| Að láta gervigreind skrifa heila kafla, greina gögn eða taka efnislegar ákvarðanir | Varhugavert og háð reglum | Þarf að koma skýrt fram, oft í aðferðafræði eða sérstakri yfirlýsingu. Þú þarft að geta útskýrt og varið niðurstöðuna. |
| Að skila texta, kóða eða heimildum frá gervigreind eins og það sé alfarið þín eigin vinna | Ekki í lagi | Þetta getur varðað ritstuld, fölsun eða brot á akademískum reglum. Sérstaklega alvarlegt er að nota tilbúnar eða skáldaðar heimildir. |
Í þessu námskeiði
Í þessu námskeiði þýðir ábyrg notkun:
- ekki setja viðkvæm, persónugreinanleg eða lokuð gögn inn í gervigreindartól nema skýrt sé að það megi
- ekki skila niðurstöðu sem þú skilur ekki
- ekki fela notkun erindreka þegar hún skiptir máli fyrir verkefnið
- ekki treysta úttaki án yfirferðar
- skráðu hvað erindrekinn gerði og hvað þú sjálf/ur sannreyndir
Erindreki má hjálpa þér að hugsa, skrifa, prófa og endurbæta. Hann má ekki taka frá þér ábyrgðina á skilningi, vali á lausn eða lokaafurð.
Að skrá notkun erindreka í GitHub
Í GitHub-verkefnum gildir sama hugsun og í fræðilegum skrifum: ef erindreki býr til efnislega lausn, kóða, skjölun eða greiningu þarf að vera skýrt hvernig hann var notaður.
Það má gera á nokkra einfalda vegu:
- nefna tólið í PR-lýsingu
- hafa stutta
AGENT_LOG.mdskrá með fyrirmælum, verkfærum og yfirferð - nota commit message sem skráir aðstoðina
- uppfæra
AGENTS.mdef repo-ið á að innihalda skýrar reglur um hvernig erindrekar mega vinna í því
Dæmi um PR-lýsingu
## Erindreki
Notaði Codex til að búa til fyrstu útgáfu af gagnahreinsun.
Fyrirmæli:
- lesa `data/raw/neighborhoods.csv`
- samræma hverfaheiti
- bæta við stuttri prófun með dæmigögnum
Ég yfirfór:
- að úttakið passi við dæmin
- að engin persónugreinanleg gögn fari í prompt
- að kóðinn sé læsilegur og keyranlegurDæmi um commit message
Ef erindreki tók efnislegan þátt í breytingunni má skrá það í commit message:
Add neighborhood cleaning helper
Generated initial implementation with Codex and revised manually.
Checked edge cases for empty values and inconsistent capitalization.
Ef hópurinn vill vera mjög skýr má líka nota Co-authored-by línu. Þá þarf að nota nafn og netfang sem tilheyrir þeim reikningi eða botta sem á að sjást sem meðhöfundur í GitHub:
Add neighborhood cleaning helper
Co-authored-by: Codex <codex@example.com>
Í námskeiðinu er þó mikilvægara að lýsa notkuninni skýrt en að hitta á fullkomið tæknilegt co-author snið. PR-lýsing eða AGENT_LOG.md er oft besti staðurinn, því þar má útskýra hvað erindrekinn gerði, hvað nemandinn breytti og hvernig lausnin var sannreynd.