Ítarefni
Gagnlegir hlekkir og lesefni sem auðga skilning á myndrænni framsetningu, henta bæði byrjendum og þeim sem vilja dýpka þekkingu sína á sérhæfðari þáttum.
Ítarefni um myndræna framsetningu
Til að bæta hæfni í myndrænni framsetningu gagna og dýpka skilning á áhrifaríkum aðferðum, eru hér nokkur gagnleg lesefni. Þessi bókmenntalisti hjálpar til við að læra að segja sögur með gögnum, velja liti markvisst, og búa til áhrifaríkar gagnavísanir með mismunandi tólum.
R for Data Science
- Höfundar: Hadley Wickham, Mine Çetinkaya-Rundel, Garrett Grolemund
- Útgefandi: O’Reilly Media
- ISBN: 9781492097402
Kostir:
- Fullkomin bók fyrir þá sem vilja læra gagnavinnslu, hreinsun, sjónræna framsetningu, og módelbyggingu í R.
- Kennir hvernig á að nýta kraft R til að vinna með gögn frá grunni upp í flóknari gagnavísanir.
- Hentar bæði byrjendum og lengra komnum sem vilja styrkja færni sína í gagnavísindum með R.
- Bókin er gefin út sem opinn bók og er aðgengileg frítt á netinu á r4ds.hadley.nz.
Storytelling with Data
- Höfundur: Cole Nussbaumer Knaflic
- Útgáfa: 2. útgáfa
- Útgefandi: Wiley
- ISBN: 978-1-119-00225-3
Kostir:
- Mjög notendavæn bók um hvernig hægt er að segja skýrar og áhrifaríkar sögur með gögnum.
- Kennir mikilvægi þess að hafa gögn skýr, einföld og áhrifamikil til að hámarka miðlun upplýsinga.
- Gagnleg handbók fyrir alla sem þurfa að miðla flóknum gögnum á skiljanlegan hátt.
Storytelling with Data: Let’s Practice!
- Höfundur: Cole Nussbaumer Knaflic
- Útgefandi: Wiley
- ISBN: 978-1-119-62149-2
Kostir:
- Æfingabók sem fylgir upphaflegu Storytelling with Data bókinni.
- Inniheldur praktískar æfingar til að hjálpa nemendum að þjálfa hæfni sína í myndrænni framsögn.
- Hentar vel fyrir þá sem vilja læra með því að gera og þróa eigin færni.
ColorWise
- Höfundur: Kate Strachnyi
- Útgefandi: O’Reilly Media
- ISBN: 9781492097846
Kostir:
- Kennir hvernig á að nota liti markvisst í gagnafrásögn.
- Fyrir byrjendur og lengra komna sem vilja auka skilning sinn á áhrifaríkri notkun lita.
- Hentar vel þeim sem vinna með myndræna framsetningu gagna í hvaða samhengi sem er.
Dear Data
- Höfundar: Giorgia Lupi og Stefanie Posavec
- Útgefandi: Princeton Architectural Press
- ISBN: 9781616895327
Kostir:
- Skemmtileg og persónuleg nálgun á gögn og sjónræna framsetningu þeirra í formi skissna og póstkorta.
- Hentar bæði fyrir þá sem vilja skapa gagnafrásögn með handteiknaðri nálgun og þá sem leita eftir nýjum hugmyndum um gagnamyndsköpun.
Data Sketches
- Höfundar: Nadieh Bremer og Shirley Wu
- Útgefandi: A K Peters/CRC Press
- ISBN: 9780367000080
Kostir:
- Rannsakar persónulegar og skapandi leiðir til að birta gagnamyndir.
- Hentar vel þeim sem leita að nýjum og skapandi hugmyndum til að birta gögn.
- Frábært fyrir þá sem vilja blanda saman list og gagnavísindum.