Glærur
Kynningarefni frá kennara og glærur gestafyrirlesara sem opnast sem sérstakar HTML-kynningar.
Frá kennara
Kennari notar yfirleitt ekki glærur í kennslustundum, en hér birtast stöku kynningar og sýnidæmi þegar við á.
2026-08-17 Kynningarefni
Fyrsti tími og stutt yfirlit yfir námskeiðið, vinnuflæðið, GitHub, erindreka og capstone-verkefnið.
Gestafyrirlestrar
Hér eru aðeins tenglar á glærur sem gestafyrirlesarar hafa sjálfir gefið út opinberlega. Af virðingu við höfundarrétt er efni annarra gestafyrirlestra ekki afritað eða endurbirt á námskeiðsvefnum, en kann að vera birt nemendum á Canvas.
2026-09-24 Gervigreind á vinnustað greiningarfólks
Gestafyrirlestur Guðmundar Einarssonar, tölfræðings hjá TM undir hatti Landsbankans og stundakennara við Háskóla Íslands. Fyrirlesturinn fjallar um hvernig greiningarvinna er að breytast með gervigreind og stöðu hennar innan skipulagsheilda.
2026-10-12 Samhengi skiptir máli
Gestafyrirlestur Vic Valenzuela, hugbúnaðarverkfræðings og sérfræðings í gervigreindarerindrekum. Fyrirlesturinn fjallar um hvernig fyrirsjáanlegt vinnuferli og skýrt samhengi gera okkur kleift að treysta því sem erindrekar smíða.
Opna glærurnar Context Matters: Predictable process for unpredictable agents
Tengd verk fyrirlesarans:
- rondo: breytir verkefnavinnu í aðskildar, sjálfvirkar útfærslukeyrslur svo teymi stýri vinnunni frekar en að vakta erindrekana.
- memento-vault: varanleg þekkingarsöfnun fyrir erindreka, þar sem lotur eru flokkaðar í leitanlegar Zettelkasten-glósur.
- beislid: ákveðin vinnuflæði (skills) fyrir erindreka, óháð verkfæri, með skýrum hliðum frekar en tilmælum.