Setja upp Git

Hvernig á að setja upp Git á Windows, macOS og Linux, staðfesta uppsetninguna og stilla nafn og netfang í fyrsta skipti.

Git er útgáfustjórnunarkerfið sem allt vinnuflæðið í námskeiðinu byggir á. Það er sjálfstætt forrit sem keyrir á þinni tölvu — óháð GitHub, sem er vefþjónustan sem hýsir geymslurnar. Þú þarft því að setja Git upp locally áður en þú getur klónað eða unnið með geymslur.

Fljótleg byrjun með myndbandi

Ef þú vilt sjá Git og GitHub í VS Code í verki áður en þú lest lengra:

Sama efni er líka til sem textaleiðbeiningar hjá GitHub: GitHub for Beginners: Getting started with Git and GitHub in VS Code.

ÁbendingNotar þú VS Code? Þá er þetta oft einfaldara

Ef þú ert með VS Code þarftu kannski ekki að setja Git upp handvirkt. VS Code er með innbyggðan Git-stuðning: farðu í Extensions (eða Source Control-flipann) og ef Git vantar á vélina bendir VS Code þér á að sækja það og leiðir þig í gegnum uppsetninguna. Þú getur þá sleppt handvirku skrefunum hér að neðan — en gott er samt að þekkja þau.

Uppsetning eftir stýrikerfi

Sæktu og keyrðu uppsetningarforritið af git-scm.com/download/win, eða settu upp gegnum winget í PowerShell:

winget install --id Git.Git -e

Uppsetningin fylgir líka Git Bash — skeljarhermir sem gefur þér Unix-líkar skipanir á Windows, sem er þægilegt fyrir Git-vinnu.

Einfaldast er að setja upp Xcode Command Line Tools, sem innihalda Git:

xcode-select --install

Eða, ef þú notar Homebrew:

brew install git

Notaðu pakkastjóra dreifingarinnar, t.d. á Debian/Ubuntu:

sudo apt update && sudo apt install git

Staðfestu uppsetninguna

Opnaðu skel (Git Bash, Terminal eða PowerShell) og keyrðu:

git --version

Ef þú sérð útgáfunúmer (t.d. git version 2.45.0) er Git komið upp.

Stilltu nafn og netfang

Í fyrsta skipti þarftu að segja Git hver þú ert — þessar upplýsingar fara á hvert commit sem þú býrð til:

git config --global user.name "Nafn Nafnsson"
git config --global user.email "netfang@hi.is"
Ábending

Notaðu sama netfang og er tengt GitHub-aðganginum þínum, svo commit-in þín tengist rétt við prófílinn þinn á GitHub.

Þegar þetta er komið ertu tilbúin að klóna geymslu og byrja að vinna — sjá Skipanir í Git.

GitHub Copilot — sjálfvirkar tillögur

Ef þú hefur sótt um GitHub Education pakkann færðu GitHub Copilot frítt sem nemandi. Með Copilot-viðbótinni í ritlinum (t.d. VS Code) færðu sjálfvirkar kóðatillögur (autocomplete) beint inn í ritilinn á meðan þú skrifar — mjög öflugt og þægilegt.

Athugasemd

Copilot er hjálpartól, ekki staðgengill skilnings. Um ábyrga notkun gervigreindar við forritun, sjá lotuna Erindrekar.