Hvað er Git og GitHub?

Grunnskýring á Git sem útgáfustjórnunarkerfi og GitHub sem samstarfsvettvangi.

Git er dreift útgáfustjórnunarkerfi sem heldur utan um breytingar á skrám yfir tíma. Það gerir okkur kleift að sjá hvað breyttist, hvenær það breyttist og hver gerði breytinguna.

GitHub er vefþjónusta sem hýsir Git-gagnageymslur og auðveldar samstarf. Þar getum við unnið með issues, branches, pull requests, kóðarýni og skjölun á einum stað.

Í þessu námskeiði notum við Git og GitHub til að:

Git geymir sögu verkefnisins

Í stað þess að vista margar útgáfur af sömu skrá, til dæmis skyrsla-loka-loka-nytt.docx, heldur Git utan um breytingasöguna. Hver breyting er skráð sem commit með stuttri lýsingu.

Þetta gerir auðveldara að:

  • fara til baka ef eitthvað bilar
  • bera saman útgáfur
  • skilja hvernig verkefni þróaðist
  • vinna samtímis án þess að skrifa yfir vinnu annarra

GitHub gerir samvinnuna sýnilega

Á GitHub er verkefnið ekki bara mappa með skrám. Það er líka vettvangur fyrir samskipti og ákvarðanir. Þegar þið vinnið í hópum notið þið GitHub til að búa til branch, opna pull request, fá kóðarýni og samþætta breytingar inn í aðalútgáfu verkefnisins.

Þessi vinnubrögð eru algeng í atvinnulífi, rannsóknum og tæknilegri skjölun. Þess vegna er mikilvægt að læra ekki bara skipanirnar, heldur líka hvernig góð samvinna í GitHub lítur út.