Hæfniviðmið

Hæfniviðmið námskeiðsins — þekkingin og færnin sem nemendur eiga að öðlast í öflun, úrvinnslu og greiningu gagna.

Hæfniviðmið námskeiðs

Markmið námskeiðsins er að nemendur öðlist þekkingu og færni í öflun, úrvinnslu, greiningu og framsetningu gagna ásamt því að tileinka sér fagleg vinnubrögð við þróun gagnadrifinna lausna.

Að loknu námskeiði skal nemandi geta:

  • aflað, undirbúið og greint gögn með viðeigandi aðferðum til að styðja við ákvarðanatöku.
  • hannað og framkvæmt SQL-fyrirspurnir til að sækja, tengja og vinna úr gögnum.
  • unnið úr textagögnum með reglulegum segðum (regex).
  • valið, framkvæmt og rökstutt viðeigandi sjónræna framsetningu gagna með gröfum, kortum og mælaborðum.
  • beitt GitHub og útgáfustjórnun við skipulagða þróun og samvinnu.
  • framkvæmt og nýtt kóðarýni til að bæta gæði, læsileika og viðhaldshæfni kóða.
  • metið og nýtt gervigreind á ábyrgan hátt sem stuðning við forritun og gagnagreiningu.
  • unnið markvisst í teymi að þróun gagnadrifinnar lausnar þar sem samþætt eru gögn, greining og framsetning.

Þessari hæfni er ætlað að ná fram í gegnum ör-capstone verkefni — sjá kennsluaðferðir — þar sem nemendur vinna að eigin raunverkefni yfir misserið og samþætta öll lykilatriði námskeiðsins.

Tenging við LOUIS

Við hönnun námskeiðsins er stuðst við LOUIS (Learning Outcomes in University for Impact on Society), sem er hluti af Aurora Competence Framework.

LOUIS veitir sameiginlegt tungumál til að skilgreina almenn fræðileg og persónuleg hæfniviðmið. Ramminn brýtur víðtæka hæfni niður í mælanlega undirþætti (dimensions) og skilgreinir stigvaxandi hæfni (performance descriptors), sem nýtast við hönnun kennslu, verkefna og námsmats.

Í þessu námskeiði er sérstaklega lögð áhersla á eftirfarandi þrjú LOUIS hæfnisvið:

  • Inquiry & Analysis (Rannsókn og greining)
  • Information Literacy (Upplýsingalæsi)
  • Teamwork (Teymisvinna)

Kortlagning

Hæfniviðmið námskeiðs LOUIS hæfnisvið Dæmi um undirhæfni (dimensions)
Greina og túlka gögn Inquiry & Analysis Analysis, Conclusions, Limitations
Hanna og framkvæma SQL-fyrirspurnir og vinna úr gögnum Inquiry & Analysis Analysis
Meta og nýta upplýsingar og gagnagjafa Information Literacy Evaluate Information, Use Information Effectively
Meta og nýta gervigreind á ábyrgan hátt Information Literacy Evaluate Information, Ethical Use of Information
Beita GitHub, framkvæma kóðarýni og vinna í teymi Teamwork Individual Contribution, Facilitating Contributions, Team Climate
Ör-capstone verkefni Öll þrjú hæfnisviðin Samþætt beiting valinna dimensions

Námsmat

Námsmat námskeiðsins byggir á sömu kortlagningu. Hvert verkefni er hannað þannig að það þjálfi ákveðin hæfniviðmið námskeiðsins og styðji við valdar LOUIS undirhæfnir (dimensions). Við námsmat verða jafnframt nýtt viðeigandi performance descriptors úr LOUIS til að skilgreina væntanlega frammistöðu nemenda. Þannig skapast skýr tenging milli hæfniviðmiða, kennsluaðferða, verkefna og námsmats (constructive alignment).