Tól fyrir endurtækar skýrslur

Yfirlit yfir helstu tól til að tengja saman kóða, gögn og framsetningu — frá R Markdown og Quarto yfir í Shiny, Power BI og Tableau.

Það er til fjöldi tóla sem gera skýrslur endurtakanlegar. Þau eiga það sameiginlegt að úttakið er búið til beint úr gögnunum og kóðanum — í stað þess að afrita tölur og myndir handvirkt inn í skjal. Munurinn liggur einkum í tvennu:

Skjalatól (kóði + texti í einu skjali)

Þessi tól blanda saman texta (markdown) og kóðabútum sem eru keyrðir við þýðingu. Úttakið er oftast statísk HTML-, PDF- eða Word-skrá.

Tól Tungumál Athugasemd
Quarto R, Python, Julia, Observable Nýrri „arftaki” R Markdown; tungumálaóháð. Þessi vefsíða er gerð í Quarto.
R Markdown (.Rmd) Aðallega R Rótgróið í R-heiminum; knitr keyrir kóðann.
Jupyter Notebook (.ipynb) Python, R, Julia Gagnvirk „notebook”; vinsælt í Python-heiminum.
ÁbendingFlatar textaskrár henta Git betur

.ipynb skrár eru í raun JSON með innbyggðu úttaki og lýsigögnum, sem gerir þær erfiðar í útgáfustýringu — diff og kóðarýni verða óskýr. Quarto (.qmd) og R Markdown (.Rmd) eru aftur á móti einfaldar, flatar textaskrár, svo hver breyting er skýr og rekjanleg í Git.

Gagnvirk mælaborð og forrit

Þegar notandinn á að geta valið, síað eða skoðað gögn í rauntíma dugar statísk skýrsla ekki — þá þarf forrit sem keyrir á bakenda.

Tól Grunnur Athugasemd
Shiny R (líka Python) Vefforrit skrifað í R; notandinn stýrir og kóðinn keyrir aftur.
Streamlit / Dash Python Sambærilegt Shiny fyrir Python.
Observable JavaScript Gagnvirk „notebook” í vafra; Quarto styður Observable-reiti.
AthugasemdBakendi krefst uppsetningar hjá notanda

Statíska síðan sem þið birtið með GitHub Pages er án bakenda, svo hún getur ekki keyrt Shiny eða sambærileg forrit beint. Slíkar lausnir skoðið þið í lotunni Myndræn framsetning undir lok námskeiðsins. Þá birtið þið ekki lifandi mælaborð á síðunni, heldur skrifið README leiðbeiningar um hvernig notandi getur keyrt mælaborðið upp út frá kóðageymslunni ykkar.

Myndræn viðskiptagreind (BI)

Þessi tól eru „drag-and-drop”: þú tengir gagnagrunn og byggir mælaborð með smellum frekar en kóða. Hentar vel fyrir viðskiptaskýrslur og fólk sem forritar ekki.

Tól Athugasemd
Power BI Frá Microsoft; tengist vel Excel og öðrum Microsoft-tólum.
Tableau Öflugt í myndrænni könnun gagna; útbreitt í iðnaði.
Looker Studio Ókeypis tól frá Google (áður Data Studio).
AðvörunLeyfisveitingar og aðgangsréttindi

Tól eins og Power BI og Tableau eru háð leyfum. Þótt til séu stúdentaútgáfur eru þau mis útbreidd úti á markaðnum. Innan fyrirtækja hafa flestir starfsmenn oft aðeins lesréttindi að mælaborðum, og færri hafa skrifréttindi til að búa til sín eigin — það er alla jafna á könnu gagnasérfræðinga eða gagnateymis fyrirtækisins (data analytics).

AthugasemdKóði er endurtakanlegri en smellir

Drag-and-drop tól eins og Power BI og Tableau eru fljót af stað, en það er erfiðara að rekja nákvæmlega hvernig mælaborð varð til og að endurgera það sjálfvirkt. Skjalatól (Quarto, R Markdown) og forrit (Shiny) geyma allt sem texta/kóða í Git — sem passar við áhersluna á rekjanleika og útgáfustýringu í þessu námskeiði.

Hvaða tól veljum við í námskeiðinu?

Við notum Quarto því það:

  • er tungumálaóháð (R, Python, Julia),
  • byggir í grunninn á venjulegu markdown sem þið kunnið nú þegar,
  • gefur statískt HTML sem hægt er að birta ókeypis með GitHub Pages, og
  • geymir allt sem texta í Git — svo hver breyting er rekjanleg.

Næstu kaflar fara yfir Quarto sjálft og hvernig úttakið er birt á vefnum.